1Heyr þú nú, Ísrael, lög þau og ákvæði, sem ég kenni yður, til þess að þér haldið þau, svo að þér megið lifa og komast inn í það land, sem Drottinn, Guð feðra yðar, gefur yður, og fá það til eignar.2Þér skuluð engu auka við þau boðorð, sem ég legg fyrir yður, né heldur draga nokkuð frá, svo að þér varðveitið skipanir Drottins Guðs yðar, sem ég legg fyrir yður.3Þér hafið séð með eigin augum, hvað Drottinn gjörði sakir Baal Peór, því að öllum þeim mönnum, sem fylgdu Baal Peór, eyddi Drottinn Guð þinn úr samfélagi yðar.4En þér, sem hélduð yður fast við Drottin Guð yðar, lifið allir fram á þennan dag.5Sjá, ég hefi kennt yður lög og ákvæði, eins og Drottinn Guð minn lagði fyrir mig, til þess að þér breytið eftir þeim í því landi, sem þér haldið nú inn í til þess að taka það til eignar.6Varðveitið þau því og haldið þau, því að það mun koma á yður orði hjá öðrum þjóðum fyrir visku og skynsemi. Þegar þær heyra öll þessi lög, munu þær segja: Það er vissulega viturt og skynsamt fólk, þessi mikla þjóð.7Því að hvaða stórþjóð er til, sem hafi guð, er henni sé eins nálægur eins og Drottinn Guð vor er oss, hvenær sem vér áköllum hann?8Og hver er sú stórþjóð, er hafi svo réttlát lög og ákvæði, eins og allt þetta lögmál er, sem ég legg fyrir yður í dag?9En vara þig og gæt vandlega sálar þinnar, að eigi gleymir þú þeim hlutum, sem þú hefir séð með eigin augum, og að það ekki líði þér úr minni alla ævidaga þína, og þú skalt gjöra þá kunna börnum þínum og barnabörnum.10Gleym þú eigi deginum, þegar þú stóðst frammi fyrir Drottni Guði þínum hjá Hóreb, og Drottinn sagði við mig: Safna þú lýðnum saman fyrir mig. Ég ætla að láta þá heyra orð mín, svo að þeir læri að óttast mig alla þá daga, sem þeir lifa á jörðinni, og kenni það einnig börnum sínum.11Þér komuð þá fram og námuð staðar undir fjallinu, en fjallið logaði allt í eldi upp í háan himin. Fylgdi því myrkur, ský og sorti.12Og Drottinn talaði við yður út úr eldinum. Hljóm orðanna heyrðuð þér, en mynd sáuð þér enga, þér heyrðuð aðeins hljóminn.13Þá birti hann yður sáttmála sinn, sem hann bauð yður að halda, tíu boðorðin, og hann reit þau á tvær steintöflur.14Þá bauð Drottinn mér að kenna yður lög og ákvæði, svo að þér gætuð breytt eftir þeim í því landi, er þér haldið nú yfir til, til þess að taka það til eignar.15Gætið yðar því vandlega, líf yðar liggur við því að þér sáuð enga mynd á þeim degi, þegar Drottinn talaði við yður hjá Hóreb út úr eldinum,16að þér ekki mannspillið yður á því að búa yður til skurðgoð í mynd einhvers líkneskis, hvort heldur er í líki karls eða konu,17í líki einhvers ferfætlings, sem til er á jörðinni, í líki einhvers fleygs fugls, er flýgur í loftinu,18í líki einhvers dýrs, sem skríður á jörðinni, eða í líki einhvers fisks, sem til er í vötnunum undir jörðinni,19og að þú eigi, þegar þú lyftir augum þínum til himins og sér sólina, tunglið og stjörnurnar, allan himinsins her, látir tælast til þess að falla fram fyrir þeim og dýrka þau. Því að Drottinn Guð þinn hefir skipt þeim meðal allra þjóða undir himninum.20Yður hefir Drottinn tekið að sér og leitt yður út úr járnbræðsluofninum, út úr Egyptalandi, svo að þér skylduð verða eignarþjóð hans, sem og hefir verið til þessa.21Drottinn reiddist mér yðar vegna, svo að hann sór, að ég skyldi ekki komast yfir Jórdan og ekki komast inn í góða landið, sem Drottinn Guð þinn gefur þér til eignar,22heldur hlýt ég að deyja í þessu landi og fæ ekki að komast yfir Jórdan. En þér munuð komast yfir um og fá þetta góða land til eignar.23Gætið yðar, að þér gleymið ekki sáttmálanum, er Drottinn Guð yðar hefir við yður gjört, og búið yður ekki til skurðgoð í mynd einhvers þess, er Drottinn Guð þinn hefir bannað þér.24Því að Drottinn Guð þinn er eyðandi eldur, vandlátur Guð.25Þegar þér hafið getið börn og barnabörn, og hafið ílengst í landinu, ef þér þá mannspillið yður á því að búa til skurðgoð í einhverri mynd og gjörið það, sem illt er í augum Drottins Guðs yðar, svo að þér egnið hann til reiði,26þá kveð ég í dag bæði himin og jörð til vitnis móti yður, að þá munuð þér brátt eyðast úr því landi, er þér haldið nú inn í yfir Jórdan til þess að fá það til eignar. Þér munuð þá eigi lifa þar mörg árin, heldur verða gjöreyddir.27Og Drottinn mun þá dreifa yður meðal þjóðanna, svo að af yður skal einungis eftir verða lítill hópur meðal heiðingja þeirra, er Drottinn leiðir yður burt til.28Þar munuð þér þjóna þeim guðum, sem eru handaverk manna, stokkar og steinar, sem eigi sjá og eigi heyra og eigi eta og eigi finna lykt.29Þar munt þú leita Drottins Guðs þíns, og þú munt finna hann, ef þú leitar hans af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni.30Þegar þú ert í nauðum staddur og allt þetta kemur yfir þig, þá munt þú, á komandi tímum, snúa þér til Drottins Guðs þíns og hlýða hans röddu.31Því að Drottinn Guð þinn er miskunnsamur Guð. Hann mun eigi yfirgefa þig né afmá þig, og hann mun eigi gleyma sáttmálanum, er hann sór feðrum þínum.32Spyr þig fyrir um fyrri tíma, sem verið hafa á undan þér, allt frá þeim tíma, er Guð skóp mennina á jörðinni, og frá einu heimsskauti til annars, hvort nokkurn tíma hafi orðið svo miklir hlutir eða nokkuð slíkt heyrst,33hvort nokkur þjóð hafi heyrt raust Guðs út úr eldinum, eins og þú hefir heyrt, og þó haldið lífi.34Eða hvort Guð hefir til reynt nokkurn tíma að koma sjálfur til þess að ná þjóð af annarri þjóð með máttarverkum, táknum og undrum, með styrjöld, sterkri hendi, útréttum armlegg og miklum skelfingum, eins og Drottinn Guð þinn gjörði við yður í Egyptalandi í augsýn þinni.35Þetta hefir þú fengið að sjá, svo að þú mættir vita, að Drottinn, hann er Guð, og enginn nema hann einn.36Af himni hefir hann látið þig heyra sína raust til þess að kenna þér, og á jörðu hefir hann látið þig sjá hinn mikla eld sinn, og þú hefir heyrt orð hans út úr eldinum.37Og fyrir því að hann elskaði feður þína og útvaldi niðja þeirra eftir þá og leiddi þig sjálfur af Egyptalandi með hinum mikla mætti sínum38til þess að stökkva burt undan þér þjóðum, sem eru stærri og sterkari en þú ert, en leiða þig þangað og gefa þér land þeirra til eignar, eins og nú er fram komið,39þá ber þér í dag að kannast við það og hugfesta það, að Drottinn, hann er Guð á himnum uppi og á jörðu niðri og enginn annar.40Þú skalt varðveita boð hans og skipanir, sem ég legg fyrir þig í dag, svo að þér vegni vel og börnum þínum eftir þig, og til þess að þú alla daga megir dvelja langa ævi í landinu, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.41Þá skildi Móse frá þrjár borgir hinumegin Jórdanar, austanmegin,42til þess að þangað mætti flýja hver sá vegandi, er óviljandi hefði vegið náunga sinn og eigi verið óvinur hans áður að hann mætti flýja í einhverja af borgum þessum og halda lífi:43Beser í eyðimörkinni á sléttlendinu handa Rúbenítum, Ramót í Gíleað handa Gaðítum og Gólan í Basan handa Manassítum.44Þetta er lögmálið, sem Móse lagði fyrir Ísraelsmenn.45Þetta eru fyrirmæli þau, lög og ákvæði, sem Móse birti Ísraelsmönnum, þá er þeir fóru af Egyptalandi,46hinumegin Jórdanar, í dalnum gegnt Bet Peór í landi Síhons Amorítakonungs, sem hafði aðsetur í Hesbon og Móse og Ísraelsmenn felldu, er þeir fóru af Egyptalandi.47Þeir lögðu undir sig land hans, svo og land Ógs, konungs í Basan, land Amorítakonunganna beggja, hinumegin Jórdanar, austanmegin,48frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, allt til Síón, það er Hermon,49og allt sléttlendið hinumegin Jórdanar, austanmegin, allt að vatninu á sléttlendinu undir Pisgahlíðum.
4.2 Engu bæta við 5Mós 13.1; Préd 3.14; Opb 22.18-19; sbr 5Mós 5.22 – ég set ykkur 5Mós 6.2; 12.11,14,28; 13.1
4.4 Enn í dag 5Mós 4.40; 6.6; 7.11; 8.11; 10.13; 11.13,27; 13.19; 27.4,10; 28.1,13; 30.2,8,11,16; 2Mós 34.11; Jós 22.5; sbr 5Mós 5.31+
4.5 Landið til eignar 5Mós 1.21+
4.6 Viska og skilningur Slm 19.8; Job 28.28; Okv 9.10; Sír 1.14-20 – halda og fylgja 5Mós 5.1+
4.7 Drottinn er meðal þjóðar sinnar 5Mós 6.15; 7.21; sbr 31.17 – nálægur Guð 5Mós 4.32-34; Slm 145.18; 148.14
4.8 Lög Slm 147.19-20
4.9 Ekki gleyma Drottni 5Mós 4.23; 6.12; 8.11,19; 26.13; 32.18 – segja börnum þínum 2Mós 10.2+
4.10 Hóreb 2Mós 19.16-20 – frammi fyrir Drottni 5Mós 29.10-13; 31.12; Jós 24.1 – óttast Drottinn 5Mós 5.29; 6.2,13,24; 8.6; 10.12,20; 13.4; 14.23; 17.19; 28.58; 31.12; Okv 1.7+ ; Sír 1.11+
4.11 Sorti 5Mós 5.22; 2Mós 20.21; Heb 12.18
4.12 Guð ávarpaði 5Mós 4.36; 5.22-27; 2Mós 19.16,9; Heb 12.19
4.13 Steintöflur 5Mós 5.22; 9.9-17; 2Mós 24.12+
4.14 Landið 5Mós 1.21+
4.16 Ekki skurðgoð 5Mós 4.23; 5.8; 2Mós 20.4+ – í mynd Róm 1.23
4.19 Dýrka sólina, tunglið … 5Mós 17.3; 2Kon 17.16; 23.4-5; Jer 8.2; Esk 8.16; Job31.26-28; SSal 13.2
4.20 Eignarþjóð Drottins 5Mós 7.6; 14.2 – járnbræðsluofn 1Kon 8.51; Jer 11.4
4.21 Drottinn reiðist Móse 5Mós 1.37+ – gott land 5Mós 1.25+ – landið gefið 5Mós 3.20+
4.22 Dauði Móse 5Mós 34 – taka landið 5Mós 1.21+
4.23 Ekki gleyma 5Mós 4.9+
4.24 Guð er eyðandi eldur 5Mós 9.3; Jes 33.14; Heb 12.29; sbr 2Mós 24.17; Jes 30.27 – afbrýðisamur Guð 2Mós 20.5+
4.25 Illt í augum Drottins 5Mós 9.18; 17.2; 31.29; 4Mós 32.13; Dóm 2.11; 3.7,12; 4.1; 6.1; 10.6; 13.1; 1Sam 15.19; 1Kon 11.6; Jes 65.12; Jer 7.30; 32.30 – vekja heift Drottins 5Mós 9.18; 31.29; 32.16-21
4.26 Vitni 5Mós 30.19; 31.28; 32.1; Jes 1.2 – bölvun 5Mós 28.15-68 – tortímast 5Mós 8.19,20; 30.18; Jós 23.16 – búa (lifa í landinu) 5Mós 4.40; 5.16,33; 11.9; 30.18; 2Mós 20.12; 1Kon 3.14; Jes 53.10; Okv 3.2+
4.27 Dreifa meðal þjóðanna 3Mós 26.33+ ; 2Kon 17.6 – örfáir 5Mós 28.62; Jes 10.20-22; 11.11; 28.5
4.28 Skurðgoð 5Mós 28.36,64; 29.17; 2Kon 19.18; Jes 44.9-20; Slm 115.4-8
4.29 Leita Drottins Jes 45.19; 51.1; Jer 50.4; Hós 3.5; 5.15; Slm 9.11+ – af öllu hjarta þínu 5Mós 9.5; 10.12; 26.16; 30.2-3; Jós 22.5; 23.14; 1Kon 2.4; 2Kon 23.3,25
4.30 Snúa sér til Drottins 5Mós 30.1-5; Jer 3.22; 4.1; Hós 6.1; 14.2; sbr 3Mós 26.40-45; 2Kro 15.2-4; Jer 29.12-15 – hlýða boðum Guðs 5Mós 8.20; 9.23; 13.5,19; 27.10; 28.1-2,15; 30.20; 1Mós 22.18; 2Mós 19.5; Jós 24.24
4.31 Miskunnsamur Guðs 5Mós 13.18; 30.3; 2Mós 33.19; Slm 103.8
4.32 Guð skapaði mennina 1Mós 1.26-27; 2.7-8,18-23; Sír 17.1
4.34 Tákn og undur 5Mós 6.22; 7.19; 26.8; 29.2; 2Mós 7.3; Slm 78.43; 105.27; Post 2.43+ – sterk hönd 5Mós 5.15; 7.19; 11.2; 26.8;sbr 3.24+
4.36 Guð hefir talað 5Mós 4.12+
4.37 Guð elskar 5Mós 7.8,13; 10.15; 23.5; 33.3; 1Kon 10.9; Jer 31.3
4.38 Ruddi úr vegi 5Mós 9.4; 11.23; 2Mós 34.24; 4Mós 32.21; Jós 3.10; 13.6; Dóm 2.21; 11.23; Slm 44.3
4.40 Sem ég set þér 5Mós 4.2+ – lifir lengi 5Mós 4.26+ – að þér vegni vel 5Mós 5.16,29,33; 6.3,18,24; 10.13; 12.25; 19.13; 22.7
4.42 Griðastaður 5Mós 19.1-13, 2Mós 21.13; 4Mós 35.9-34; Jós 20
4.45 Lögin 5Mós 1.1-5; 5.1; 12.1
4.46 Síhon og Óg 5Mós 1.4+
4.49 Pisga 5Mós 3.17+