1Móse stefndi saman öllum söfnuði Ísraelsmanna og sagði við þá: Þetta er það, sem Drottinn hefir boðið að gjöra:2Sex daga skal verk vinna, en sjöundi dagurinn skal vera yður helgur hvíldardagur, hátíðarhvíld Drottins. Hver sem verk vinnur á þeim degi, skal líflátinn verða.3Hvergi skuluð þér kveikja upp eld í híbýlum yðar á hvíldardegi.4Móse talaði til alls safnaðar Ísraelsmanna og mælti: Þetta er það, sem Drottinn hefir boðið:5„Færið Drottni gjöf af því, sem þér eigið. Hver sá, er gefa vill af fúsum huga, beri fram gjöf Drottni til handa: gull, silfur og eir;“6„bláan purpura, rauðan purpura, skarlat, baðmull og geitahár;“7„rauðlituð hrútskinn, höfrungaskinn og akasíuvið;“8„olíu til ljósastikunnar, kryddjurtir til smurningarolíu og ilmreykelsis;“9sjóamsteina og steina til legginga á hökulinn og brjóstskjöldinn.10Og allir hagleiksmenn meðal yðar komi og búi til allt það, sem Drottinn hefir boðið:11búðina, tjöldin yfir hana, þak hennar, króka, borð, slár, stólpa og undirstöður,12örkina og stengurnar, er henni fylgja, lokið og fortjaldsdúkbreiðuna,13borðið og stengurnar, er því fylgja, öll áhöld þess og skoðunarbrauðin,14ljósastikuna, áhöld þau og lampa, er henni fylgja, og olíu til ljósastikunnar,15reykelsisaltarið og stengurnar, er því fylgja, smurningarolíuna, ilmreykelsið og dúkbreiðuna fyrir dyrnar, fyrir dyr búðarinnar,16brennifórnaraltarið og eirgrindina, sem því fylgir, stengur þess og öll áhöld, og kerið með stétt þess,17tjöld forgarðsins, stólpa hans með undirstöðum og dúkbreiðuna fyrir hlið forgarðsins,18hæla búðarinnar og hæla forgarðsins og þau stög, sem þar til heyra,19glitklæðin til embættisgjörðar í helgidóminum, hin helgu klæði Arons prests og prestsþjónustuklæði sona hans.20Því næst gekk allur söfnuður Ísraelsmanna burt frá Móse.21Komu þá allir, sem gáfu af fúsum huga og með ljúfu geði, og færðu Drottni gjafir til að gjöra af samfundatjaldið og allt það, sem þurfti til þjónustugjörðarinnar í því og til hinna helgu klæða.22Og þeir komu, bæði menn og konur, allir þeir, sem fúsir voru að gefa, og færðu spangir, eyrnagull, hringa, hálsmen og alls konar gullgripi, svo og hver sá, er færa vildi Drottni gull að fórnargjöf.23Og hver maður, sem átti í eigu sinni bláan purpura, rauðan purpura, skarlat, baðmull, geitahár, rauðlituð hrútskinn og höfrungaskinn, bar það fram.24Og hver sem bar fram silfur og eir að fórnargjöf, færði það Drottni að fórnargjöf, og hver sem átti í eigu sinni akasíuvið til hvers þess smíðis, er gjöra skyldi, bar hann fram.25Og allar hagvirkar konur spunnu með höndum sínum og báru fram spuna sinn: bláan purpura, rauðan purpura, skarlat og baðmull.26Og allar konur, sem til þess voru fúsar og höfðu kunnáttu til, spunnu geitahár.27En foringjarnir færðu sjóamsteina og steina til legginga á hökulinn og brjóstskjöldinn,28og kryddjurtir og olíu til ljósastikunnar og til smurningarolíu og ilmreykelsis.29Ísraelsmenn færðu Drottni þessar gjafir sjálfviljuglega, hver maður og hver kona, er fúslega vildi láta eitthvað af hendi rakna til alls þess verks, er Drottinn hafði boðið Móse að gjöra.30Móse sagði við Ísraelsmenn: Sjáið, Drottinn hefir kvatt til Besalel Úríson, Húrssonar, af Júda ættkvísl31og fyllt hann Guðs anda, bæði vísdómi, skilningi, kunnáttu og hvers konar hagleik,32til þess að upphugsa listaverk og smíða úr gulli, silfri og eiri33og skera steina til greypingar og til tréskurðar, til þess að vinna að hvers konar hagvirki.34Hann hefir og gefið honum þá gáfu að kenna öðrum, bæði honum og Oholíab Akísamakssyni af Dans ættkvísl.35Hann hefir fyllt þá hugviti til alls konar útskurðar, listvefnaðar, glitvefnaðar af bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og baðmull, og til dúkvefnaðar, svo að þeir geta framið alls konar iðn og upphugsað listaverk.
Hægt er að nálgast texta þessa kafla í öðrum íslenskum þýðingum með því að smella á nafn þýðingarinnar hér fyrir neðan. Þýðingin opnast í nýjum glugga.