1 Breytið eftir mér eins og ég breyti eftir Kristi.
Um ytri hegðun
2 Ég hrósa ykkur fyrir það að þið í öllu minnist mín og haldið fast við kenningarnar eins og ég flutti ykkur þær. 3 En ég vil að þið vitið að Kristur er höfuð sérhvers karlmanns, að karlmaðurinn er höfuð konunnar og Guð höfuð Krists. 4 Sérhver sá karlmaður, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs og hefur á höfðinu, hann óvirðir höfuð sitt. 5 En sérhver kona, sem biðst fyrir eða flytur spádóma Guðs berhöfðuð, óvirðir höfuð sitt. Það er hið sama sem hún hefði látið krúnuraka sig. 6 Ef konan því vill ekki hylja höfuð sitt, þá láti hún klippa sig. En ef það er óvirðing fyrir konuna að láta klippa eða raka hár sitt, þá hafi hún á höfðinu.
7 Karlmaður á ekki að hylja höfuð sitt því að hann er ímynd Guðs og endurspeglar dýrð hans en konan endurspeglar dýrð mannsins. 8 Því ekki er karlinn af konunni kominn heldur konan af karlinum 9 og ekki var heldur karlinn skapaður vegna konunnar heldur konan vegna karlsins. 10 Þess vegna á konan að bera á höfði sér tákn um valdsvið sitt vegna englanna. 11 Þó er hvorki konan óháð karlmanninum né karlmaðurinn konunni í samfélaginu við Drottin 12 því að eins og konan er komin af karlinum, svo er og karlinn fæddur af konunni en allt er frá Guði.
13 Dæmið sjálf: Sæmir það konu að biðja til Guðs berhöfðuð? 14 Kennir ekki sjálf náttúran ykkur að ef karlmaður ber sítt hár, þá er það honum vansæmd 15 en ef kona ber sítt hár, þá er það henni sæmd? Því að síða hárið er gefið henni í höfuðblæju stað. 16 En ætli nú einhver sér að gera þetta að kappsmáli, þá er slíkt ekki venja okkar eða safnaða Guðs.
17 En um leið og ég gef ykkur þessi fyrirmæli get ég ekki hrósað ykkur fyrir samkomur ykkar sem eru fremur til ills en góðs. 18 Í fyrsta lagi heyri ég að þið skiptist í hópa þegar söfnuðurinn kemur saman. Því trúi ég að nokkru leyti. 19 Reyndar verða flokkar að vera meðal ykkar til þess að í ljós komi hverjum má treysta. 20 En þegar þið komið saman verður það ekki til þess að neyta máltíðar Drottins, 21 því hver um sig neytir síns matar fyrir fram og svo er einn hungraður og annar drekkur sig ölvaðan. 22 Hafið þið þá ekki hús til að eta í og drekka? Viljið þið vanvirða söfnuð Guðs og auðmýkja þá sem ekkert eiga? Hvað á ég að segja við ykkur? Á ég að hæla ykkur fyrir þetta? Nei, ég hæli ykkur ekki.
23 Því að ég hef meðtekið frá Drottni það sem ég hef kennt ykkur: Nóttina, sem Drottinn Jesús var svikinn, tók hann brauð, 24 gerði þakkir, braut það og sagði: „Þetta er líkami minn. Gjörið þetta í mína minningu.“ 25 Sömuleiðis tók hann og bikarinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: „Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði. Gjörið þetta, svo oft sem þér drekkið, í mína minningu.“
26 Hvert sinn sem þið etið þetta brauð og drekkið af bikarnum boðið þið dauða Drottins þangað til hann kemur. 27 Hver sem etur brauðið eða drekkur bikar Drottins á óverðugan hátt verður þess vegna sekur við líkama og blóð Drottins. 28 Hver maður prófi sjálfan sig áður en hann etur af brauðinu og drekkur af bikarnum. 29 Því að sá sem etur og drekkur án þess að gera sér grein fyrir að það er líkami Drottins, hann etur og drekkur sér til dómsáfellis. 30 Þess vegna eru svo margir sjúkir og lasburða á meðal ykkar og allmargir deyja. 31 Ef við dæmdum um okkur sjálf yrðum við ekki dæmd. 32 En þegar Drottinn dæmir okkur er hann að aga okkur til þess að við verðum ekki dæmd sek ásamt heiminum.
33 Systkin,[ þess vegna skuluð þið bíða hvert eftir öðru þegar þið komið saman til að matast. 34 Ef nokkur er hungraður, þá eti hann heima til þess að samkomur ykkar verði ykkur ekki til dómsáfellis. Annað mun ég segja til um þegar ég kem.