Hyggindi sem í hag koma

1Háðu ekki baráttu við voldugan mann,
þú gætir fallið í hendur honum.
2 Þrátta eigi við auðugan mann,
hann kann að nota fé sitt þér til falls.
Gullið hefur mörgum manni spillt
og glapið huga konunga.
3 Þrátta eigi við þrasgjarnan mann,
bæt ekki brenni á bál hans.
4 Dragðu eigi dár að illa uppöldum,
þá kann hann að smána forfeður þína.
5 Áfellstu ekki neinn sem bætir ráð sitt,
minnstu þess að vér allir erum sekir.
6 Vanvirtu ekki neinn sem elli beygir,
ýmsir af oss munu einnig eldast.
7 Fagna þú aldrei dauða neins,
minnstu þess að vér munum allir deyja.
8 Vanvirtu eigi viturra orð,
leggðu alúð við líkingar þeirra.
Þaðan mun þér þekking koma
til þess að þjóna þjóðhöfðingjum.
9 Gefðu gaum að því sem gamlir kveða,
þeir námu sjálfir af sínum feðrum.
Af þeim mátt þú hyggindi hljóta
sem verða þér hagfelld þegar álits þíns er leitað.
10 Blástu eigi að glóðum syndarans,
ella kann bál hans að brenna þig.
11 Ekki skaltu hopa fyrir óskammfeilnum
því að þá mun hann snúa orðum þínum gegn þér.
12 Lána eigi þeim sem er þér voldugri,
gerir þú það máttu telja það tapað.
13 Gakk eigi í ábyrgð um efni fram,
ef þú gerir það skaltu búast við að borga sjálfur.
14 Deil eigi við dómara,
hann vinnur málið vegna stöðu sinnar.
15 Ferðastu eigi með fífldjörfum,
hann mun valda þér mesta háska.
Hann lætur kylfu ráða kasti
og heimska hans mun kosta ykkur báða lífið.
16 Bjóð ekki uppstökkum birginn,
far aldrei með þeim um óbyggðir.
Slíkum finnst hégómi að úthella blóði
og þegar enginn er til hjálpar ræðst hann á þig.
17 Ráðgastu eigi við einfeldning,
hann getur ekki þagað yfir neinu.
18 Lát eigi ókunna sjá það sem þú vilt leyna,
lítt veistu til hvers það kann að leiða.
19 Segðu engum allan hug
svo að þér eigi heill hrapi.