Jehú ávítar Jósafat konung

1 Jósafat, konungur í Júda, sneri nú heill á húfi heim til Jerúsalem. 2 Þá gekk sjáandinn Jehú Hananíson á móti honum og sagði við Jósafat konung: „Ber þér að hjálpa hinum guðlausa og vingast við þá sem hata Drottin? Vegna þess hvílir reiði Drottins á þér. 3 Eigi að síður hefur ýmislegt gott fundist í fari þínu. Þannig hefur þú upprætt Asérustólpana úr landinu og einbeitt þér að því að leita Guðs.“

Réttarbót Jósafats

4 Jósafat bjó nú í Jerúsalem en fór aftur í leiðangur á meðal þjóðarinnar, frá Beerseba til Efraímsfjalla, til að snúa henni aftur til Drottins, Guðs feðra hennar. 5 Hann skipaði einnig dómara í landinu, í sérhverri víggirtri borg í Júda. 6 Hann gaf dómurunum svohljóðandi fyrirmæli: „Hafið gát á því sem þið gerið því að þið haldið ekki dómþing í umboði manna heldur í umboði Drottins. Hann er með ykkur þegar þið kveðið upp dóma. 7 Látið nú lotningu fyrir Drottni stjórna gerðum ykkar. Gætið að því sem þið gerið því að hjá Drottni, Guði okkar, er hvorki til ranglæti, manngreinarálit né mútuþægni.“
8 Í Jerúsalem skipaði Jósafat einnig nokkra af Levítunum, prestunum og ættarhöfðingjum Ísraels í dómstól Drottins vegna deilna meðal íbúanna í Jerúsalem. 9 Hann gaf þeim svohljóðandi fyrirmæli: „Þetta skuluð þið gera af trúmennsku og heilum hug og lotningu fyrir Drottni: 10 Þegar bræður ykkar, sem búa í heimabæjum sínum, skjóta til ykkar deilu skuluð þið vara þá við svo að þeir verði ekki sekir fyrir Drottni og reiði hans komi yfir ykkur og bræður ykkar. Þetta á við, hvort sem um er að ræða mun á blóðsektum eða mun á leiðsögn og fyrirmælum eða lögum og reglum. Framfylgið þessu svo að þið verðið ekki sekir. 11 Amarja yfirprestur er yfir ykkur í öllum málefnum Drottins en Sebadja Ísmaelsson, höfðingi Júdaættar, er yfir ykkur í öllum málefnum konungs. Levítarnir munu verða embættismenn í þjónustu ykkar. Verið hughraustir. Drottinn sé með þeim sem breytir rétt.“