Postular sendir

1 Jesús kallaði saman þá tólf og gaf þeim mátt og vald yfir öllum illum öndum og til að lækna sjúkdóma. 2 Hann sendi þá að boða Guðs ríki og græða sjúka 3 og sagði við þá: „Takið ekkert til ferðarinnar, hvorki staf né mal, brauð né silfur, og enginn hafi tvo kyrtla. 4 Og hvar sem þið fáið inni, þar sé aðsetur ykkar og þaðan skuluð þið leggja upp að nýju. 5 En taki menn ekki við ykkur, þá farið úr borg þeirra og hristið dustið af fótum ykkar til vitnisburðar gegn þeim.“
6 Þeir lögðu af stað og fóru um þorpin, fluttu fagnaðarerindið og læknuðu hvarvetna.

Heródes vill sjá Jesú

7 En Heródes fjórðungsstjóri frétti allt sem gerst hafði og vissi ekki hvað hann átti að halda því að sumir sögðu að Jóhannes væri risinn upp frá dauðum, 8 aðrir að Elía væri kominn fram, enn aðrir að einn hinna fornu spámanna væri risinn upp. 9 Heródes sagði: „Jóhannes lét ég hálshöggva en hver er þessi er ég heyri þvílíkt um?“ Og hann leitaði færis að sjá hann.

Jesús mettar fimm þúsundir

10 Postularnir komu aftur og skýrðu Jesú frá öllu því er þeir höfðu gert en hann tók þá með sér og vék brott til bæjar, sem heitir Betsaída, til þess að þeir væru einir saman. 11 Mannfjöldinn varð þess var og fór á eftir honum. Jesús tók mönnum vel og talaði við þá um Guðs ríki og læknaði þá er lækningar þurftu.
12 Nú tók degi að halla. Komu þá þeir tólf að máli við hann og sögðu: „Lát þú mannfjöldann fara svo að hann nái til þorpa og býla hér í kring og geti fengið gistingu og mat því að hér erum við á óbyggðum stað.“
13 En Jesús sagði við þá: „Gefið þeim sjálfir að eta.“
Þeir svöruðu: „Við eigum ekki meira en fimm brauð og tvo fiska nema við förum og kaupum vistir handa öllu þessu fólki.“ 14 En þar voru um fimm þúsund karlmenn.
Hann sagði þá við lærisveina sína: „Látið þá setjast í hópa, um fimmtíu í hverjum.“
15 Þeir gerðu svo og létu alla setjast. 16 En hann tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut þau og gaf lærisveinunum til að bera fram fyrir mannfjöldann. 17 Allir neyttu og urðu mettir. En leifarnar eftir þá voru teknar saman, tólf körfur brauðbita.

Játning Péturs

18 Eitt sinn er Jesús var einn á bæn og lærisveinarnir hjá honum spurði hann þá: „Hvern segir fólkið mig vera?“
19 Þeir svöruðu: „Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir að einn hinna fornu spámanna sé risinn upp.“
20 Og Jesús sagði við þá: „En þið, hvern segið þið mig vera?“
Pétur svaraði: „Krist Guðs.“

Mannssonurinn á margt að líða

21 Jesús lagði ríkt á við þá að segja þetta engum 22 og mælti: „Mannssonurinn á margt að líða. Öldungarnir, æðstu prestarnir og fræðimennirnir munu útskúfa honum og hann verður líflátinn. En á þriðja degi mun hann upp rísa.“
23 Og Jesús sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér. 24 Því að hver sem vill bjarga lífi sínu mun týna því og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, hann mun bjarga því. 25 Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn en týna eða glata sjálfum sér? 26 Þegar Mannssonurinn kemur í dýrð sinni og dýrð föðurins og heilagra engla mun hann blygðast sín fyrir þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð. 27 En ég segi yður með sanni: Nokkrir þeirra sem hér standa munu ekki deyja fyrr en þeir sjá Guðs ríki.“

Þessi er sonur minn

28 Um átta dögum eftir ræðu þessa tók Jesús með sér þá Pétur, Jóhannes og Jakob og gekk upp á fjallið að biðjast fyrir. 29 Og er hann var að biðjast fyrir varð yfirlit ásjónu hans annað og klæði hans urðu hvít og skínandi. 30 Og tveir menn voru á tali við hann. Það voru þeir Móse og Elía. 31 Þeir birtust í dýrð og ræddu um brottför hans sem hann skyldi fullna í Jerúsalem. 32 Þá Pétur og félaga hans sótti mjög svefn en nú vöknuðu þeir og sáu dýrð hans og mennina tvo er stóðu hjá honum. 33 Þegar þeir voru að skilja við Jesú mælti Pétur við hann: „Meistari, gott er að við erum hér. Gerum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“ Ekki vissi Pétur hvað hann sagði.
34 Um leið og Pétur mælti þetta kom ský og skyggði yfir þá og urðu þeir hræddir er þeir komu inn í skýið. 35 Og rödd kom úr skýinu og sagði: „Þetta er sonur minn sem ég hef útvalið, hlýðið á hann!“ 36 Er röddin hafði talað var Jesús einn. Og þeir þögðu og sögðu á þeim dögum engum frá neinu því sem þeir höfðu séð.

Jesús læknar svein

37 Daginn eftir, er Jesús og lærisveinarnir fóru ofan af fjallinu, kom mikill mannfjöldi á móti Jesú. 38 Og maður nokkur úr mannfjöldanum hrópar: „Meistari, ég bið þig að líta á son minn því að hann er einkabarnið mitt. 39 Það er andi sem grípur hann og þá æpir hann skyndilega. Hann teygir hann svo að hann froðufellir og víkur varla frá honum og er að gera út af við hann. 40 Ég bað lærisveina þína að reka hann út en þeir gátu það ekki.“
41 Jesús svaraði: „Þú vantrúa og rangsnúna kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá ykkur og umbera ykkur? Fær þú hingað son þinn.“
42 Þegar sveinninn var að koma slengdi illi andinn honum flötum og teygði hann ákaflega. En Jesús hastaði á óhreina andann, læknaði sveininn og gaf hann aftur föður hans. 43 Og allir undruðust stórum veldi Guðs.

Þeir skildu ekki

Þá er allir dáðu allt það er hann gerði sagði Jesús við lærisveina sína: 44 „Festið þessi orð í huga: Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur.“ 45 En þeir skildu ekki hvað hann átti við. Það var þeim hulið til þess að þeir gætu ekki skilið það. Og þeir þorðu ekki að spyrja Jesú um þetta.

Hver er mestur

46 Sú spurning kom fram meðal þeirra hver þeirra væri mestur. 47 Jesús vissi hvað þeir hugsuðu í hjörtum sínum og tók lítið barn, setti það hjá sér 48 og sagði við þá: „Hver sem tekur við þessu barni í mínu nafni tekur við mér og hver sem tekur við mér tekur við þeim er sendi mig. Því að sá sem minnstur er meðal ykkar allra, hann er mestur.“

Sá sem er ekki á móti yður

49 Jóhannes tók til máls: „Meistari, við sáum mann reka út illa anda í þínu nafni og vildum við varna honum þess af því að hann fylgir okkur ekki.“
50 En Jesús sagði við hann: „Varnið þess ekki. Sá sem er ekki á móti ykkur er með ykkur.“

Upp til Jerúsalem

51 Nú fullnaðist brátt sá tími er Jesús skyldi upp numinn verða. Beindi hann þá augum til Jerúsalem, einráðinn að fara þangað. 52 Og hann lét sendiboða fara á undan sér. Þeir fóru og komu í Samverjaþorp nokkurt til að búa honum gistingu. 53 En menn tóku ekki við honum því að hann var á leið til Jerúsalem. 54 Þegar lærisveinar hans, þeir Jakob og Jóhannes, sáu það sögðu þeir: „Drottinn, eigum við að bjóða að eldur falli af himni og tortími þeim?“[
55 En Jesús sneri sér við og ávítaði þá [og sagði: „Ekki vitið þið hvaða andi býr í ykkur. 56 Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum heldur til að frelsa.“][ Og þeir fóru í annað þorp.

Fylg þú mér

57 Á leiðinni sagði maður nokkur við Jesú: „Ég vil fylgja þér hvert sem þú ferð.“
58 Jesús sagði við hann: „Refar eiga greni og fuglar himins hreiður en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla.“
59 Við annan sagði hann: „Fylg þú mér!“
Sá mælti: „Drottinn, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn.“
60 Jesús svaraði: „Lát hina dauðu jarða sína dauðu en far þú og boða Guðs ríki.“
61 Enn annar sagði: „Ég vil fylgja þér, Drottinn, en leyf mér fyrst að kveðja fólk mitt heima.“
62 En Jesús sagði við hann: „Enginn sem leggur hönd á plóginn og horfir aftur er hæfur í Guðs ríki.“