Einn skal annan styrkja

1 Takið á móti trúarveikum án þess að dæma skoðanir þeirra. 2 Einn er þeirrar trúar að alls megi neyta, annar er veikur í trúnni og neytir einungis jurtafæðu. 3 Sá sem neytir skal ekki fyrirlíta hinn sem neytir ekki og sá sem neytir ekki skal ekki dæma þann sem neytir því að Guð hefur tekið á móti honum. 4 Hvað átt þú með að dæma þjón annars manns? Hann stendur og fellur herra sínum. Og hann mun standa því að megnugur er Drottinn þess að láta hann standa.
5 Einn gerir mun á dögum, annar metur alla daga jafna. Hver og einn fylgi sannfæringu sinni. 6 Sá sem þykist verða að taka tillit til þess hvaða dagur er gerir svo vegna Drottins. Og sá sem neytir kjöts gerir það vegna Drottins því að hann gerir Guði þakkir. Hinn sem lætur óneytt gerir svo vegna Drottins og færir Guði þakkir. 7 Því að enginn okkar lifir sjálfum sér og enginn deyr sjálfum sér. 8 Ef við lifum, lifum við Drottni, ef við deyjum, deyjum við Drottni. Hvort sem við þess vegna lifum eða deyjum þá erum við Drottins. 9 Því að til þess dó Kristur og varð aftur lifandi að hann skyldi drottna bæði yfir dauðum og lifandi. 10 En þú, hví dæmir þú bróður þinn? Eða þá þú, hví fyrirlítur þú bróður þinn? Öll munum við verða að standa frammi fyrir dómstóli Guðs. 11 Því að ritað er: „Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn, fyrir mér skal hvert kné beygja sig og sérhver tunga vegsama Guð.“
12 Þannig skal sérhvert okkar gera Guði skil á sjálfu sér.
13 Dæmum því ekki framar hvert annað. Hitt skuluð þið ákveða að verða trúsystkinum[ ykkar ekki til ásteytingar eða falls. 14 Það veit ég með fullri vissu í trúnni á Drottin Jesú að ekkert er vanheilagt í sjálfu sér nema þá þeim sem heldur eitthvað vanheilagt, honum er það vanheilagt. 15 Ef bróðir þinn eða systir[ hryggist sökum þess sem þú etur, þá ertu kominn af kærleikans braut. Hrind ekki með mat þínum í glötun þeim manni sem Kristur dó fyrir.
16 Látið því ekki hið góða sem þið eigið verða fyrir lasti. 17 Guðs ríki er ekki matur og drykkur heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda. 18 Hver sem þannig þjónar Kristi er Guði velþóknanlegur og í metum hjá mönnum.
19 Keppum þess vegna eftir því sem til friðar heyrir og eflir samfélagið. 20 Brjóttu ekki niður verk Guðs vegna matar. Allt er að sönnu hreint en allt verður samt illt þeim manni sem etur öðrum til falls. 21 Það er rétt að eta hvorki kjöt né drekka vín eða gera neitt það annað sem kemur illa við bróður þinn eða systur.[ 22 Haltu fast við trúna sem þú átt með sjálfum þér frammi fyrir Guði. Sæll er sá sem þarf ekki að áfella sig fyrir það sem hann telur vera rétt. 23 En sá sem er efablandinn og etur þó, hann er dæmdur af því að hann gerir það ekki af trú. Allt sem er ekki af trú er synd.