Um hernað

1 Þegar þú ferð í hernað gegn fjandmönnum þínum og sérð hesta, hervagna og her sem er fjölmennari en þinn skaltu ekki óttast þá því að Drottinn, Guð þinn, er með þér, hann sem leiddi þig frá Egyptalandi. 2 Þegar þið eruð í þann veginn að leggja til orrustu skal presturinn ganga fram, ávarpa herinn 3 og segja: „Heyr, Ísrael. Í dag leggið þið til orrustu gegn fjandmönnum ykkar. Látið ekki hugfallast, óttist ekki, skelfist hvorki né hræðist andspænis þeim 4 því að Drottinn, Guð ykkar, er með í för til að berjast fyrir ykkur við fjandmenn ykkar og veita ykkur sigur.“
5 Því næst eiga eftirlitsmennirnir að ávarpa herinn og segja: „Hver sá sem byggt hefur nýtt hús en ekki vígt það enn skal fara og snúa aftur heim til sín svo að hann falli ekki í orrustunni og einhver annar vígi það. 6 Hver sá sem plantað hefur víngarð en hefur enn engar nytjar haft af honum skal snúa aftur heim til sín svo að hann falli ekki í orrustunni og einhver annar njóti uppskerunnar. 7 Hver sá sem hefur fastnað sér konu en hefur ekki enn tekið saman við hana skal fara og snúa aftur heim til sín svo að hann falli ekki í orrustunni og einhver annar gangi að eiga hana.“
8 Enn fremur skulu eftirlitsmennirnir bæta við ávarpið til hersins og segja: „Hver sá maður, sem er hræddur og hugdeigur, skal fara héðan og snúa aftur heim til sín svo að bræðrum hans fallist ekki hugur eins og honum.“
9 Þegar eftirlitsmennirnir hafa lokið ávarpi sínu til hersins skulu fyrirliðar skipaðir og þeir taka við stjórn. 10 Þegar þú býst til að herja á borg skaltu fyrst bjóða henni friðarskilmála. 11 Ef hún gengur að þeim og lýkur hliðum sínum upp fyrir þér skulu allir borgarbúar vinna fyrir þig kvaðavinnu og gerast lýðskyldir þér. 12 En hafni hún því að gera við þig friðarsáttmála og kjósi að heyja við þig orrustu skalt þú setjast um hana. 13 Þegar Drottinn, Guð þinn, gefur þér hana á vald skaltu höggva allt karlkyns þar með sverðseggjum. 14 Þú mátt hins vegar taka að herfangi konur, börn og búfé og allt annað sem í borginni er og þú getur rænt. Þú mátt nýta þér herfangið sem þú hefur tekið af fjandmönnum þínum því að Drottinn, Guð þinn, hefur gefið þér það.
15 Þannig skaltu fara með allar þær borgir sem eru mjög fjarlægar þér og eru ekki meðal þeirra borga sem þjóðirnar hér ráða yfir.
16 En þú skalt ekki láta neitt, sem lífsanda dregur, lífi halda í borgum þjóðanna sem Drottinn, Guð þinn, fær þér að erfðahlut. 17 Þú skalt helga þessar þjóðir banni: Hetíta, Amoríta, Kanverja, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta eins og Drottinn, Guð þinn, hefur fyrir þig lagt, 18 því að þær mega ekki fá ykkur til að syndga gegn Drottni, Guði ykkar, með því að kenna ykkur að stunda þær svívirðingar sem þær fremja þegar þær dýrka guði sína. 19 Þegar þú situr um borg í langan tíma og herjar á hana til þess að vinna hana skaltu ekki spilla trjám borgarinnar eða skaða þau með því að bera að þeim öxi. Af því að þú mátt neyta ávaxta af þeim skaltu ekki fella þau. Eru trén á mörkinni menn svo að þú verðir að sitja um þau?
20 En trjám, sem þú veist að ekki bera æta ávexti, máttu spilla. Þau máttu höggva og byggja úr þeim hervirki til umsáturs gegn borginni sem á í orrustu við þig þar til hún fellur.