1 Til söngstjórans. Lag: Hind morgunroðans. Davíðssálmur.
2Guð minn, Guð minn! Hví hefur þú yfirgefið mig?
Ég hrópa en hjálp mín er fjarlæg.
3„Guð minn!“ hrópa ég um daga en þú svarar ekki,
og um nætur en ég finn enga fró.
4Samt ert þú Hinn heilagi
sem ríkir yfir lofsöngvum Ísraels.
5Þér treystu feður vorir,
þeir treystu þér og þú hjálpaðir þeim,
6hrópuðu til þín og þeim var bjargað,
treystu þér og vonin brást þeim ekki.
7En ég er maðkur og ekki maður,
smánaður af mönnum, fyrirlitinn af öllum.
8Allir, sem sjá mig, gera gys að mér,
geifla sig og hrista höfuðið.
9Hann fól málefni sitt Drottni,
hann hjálpi honum,
og frelsi hann, hafi hann þóknun á honum.
10Þú leiddir mig fram af móðurlífi,
lést mig liggja öruggan við brjóst móður minnar.
11Til þín var mér varpað úr móðurskauti,
frá móðurlífi ert þú Guð minn.
12Ver eigi fjarri mér
því að neyðin er nærri
og enginn hjálpar.
13Sterk naut umkringja mig,
Basans uxar slá hring um mig, [
14glenna upp ginið í móti mér,
sem bráðsólgið, öskrandi ljón.
15Ég er eins og vatn sem hellt er út,
öll bein mín gliðnuð í sundur,
hjarta mitt er sem vax,
bráðnað í brjósti mér.
16Kverkar mínar eru þurrar sem brenndur leir,
tungan loðir við góminn,
þú leggur mig í duft dauðans.
17Hundar umkringja mig,
hópur illvirkja slær hring um mig,
þeir hafa gegnumstungið hendur mínar og fætur.
18Ég get talið öll mín bein,
þeir horfa á og hafa mig að augnagamni.
19Þeir skipta með sér klæðum mínum,
kasta hlut um kyrtil minn.
20En þú, Drottinn, ver ekki fjarri,
styrkur minn, skunda mér til hjálpar.
21Frelsa mig undan sverðinu
og líf mitt frá hundunum.
22 Bjarga mér úr gini ljónsins
og frá hornum villinautanna.
Þú hefur bænheyrt mig.
23 Ég vil vitna um nafn þitt
fyrir bræðrum mínum,
í söfnuðinum vil ég lofa þig.
24 Þér, sem óttist Drottin, lofið hann,
tignið hann, allir niðjar Jakobs, óttist hann, allir niðjar Ísraels.
25 Því að hvorki fyrirleit hann hinn hrjáða
né virti að vettugi neyð hans.
Hann huldi ekki auglit sitt fyrir honum
heldur heyrði hróp hans á hjálp.
26 Frá þér kemur lofsöngur minn í stórum söfnuði,
heit mín vil ég efna frammi fyrir þeim sem óttast Drottin.
27 Snauðir munu eta og verða mettir,
þeir sem leita Drottins skulu lofa hann.
Hjörtu yðar lifi að eilífu.
28 Endimörk jarðar skulu minnast þess og hverfa aftur til Drottins
og allar ættir þjóðanna falla fram fyrir augliti hans.
29 Því að ríkið er Drottins,
hann drottnar yfir þjóðunum.
30 Öll stórmenni jarðar munu falla fram fyrir honum
og allir sem hníga í duftið beygja kné sín fyrir honum.
31 En ég vil lifa honum,
niðjar mínir munu þjóna honum.
32 Komandi kynslóðum mun sagt verða frá Drottni
og óbornum mun boðað réttlæti hans
því að hann hefur framkvæmt það.