Jesús og samverska konan

1 Farísear höfðu heyrt að Jesús fengi fleiri lærisveina og skírði fleiri en Jóhannes. 2 Reyndar skírði Jesús ekki sjálfur heldur lærisveinar hans. 3 Þegar Jesús varð þess vís hvarf hann brott úr Júdeu og hélt aftur til Galíleu. 4 Hann varð að fara um Samaríu.
5 Nú kemur hann til borgar í Samaríu er Síkar heitir, nálægt þeirri landspildu sem Jakob gaf Jósef syni sínum. 6 Þar var Jakobsbrunnur. Jesús var vegmóður og settist þarna við brunninn. Þetta var um hádegisbil.
7 Samversk kona kemur að sækja vatn. Jesús segir við hana: „Gef mér að drekka.“ 8 En lærisveinar hans höfðu farið inn í borgina að kaupa vistir.
9 Þá segir samverska konan við hann: „Hverju sætir að þú, sem ert Gyðingur, biður mig um að drekka, samverska konu?“ [En Gyðingar hafa ekki samneyti[ við Samverja.][
10 Jesús svaraði henni: „Ef þú þekktir gjöf Guðs og vissir hver sá er sem segir við þig: Gef mér að drekka, þá mundir þú biðja hann og hann gæfi þér lifandi vatn.“
11 Hún segir við hann: „Herra, þú hefur enga skjólu að ausa með og brunnurinn er djúpur. Hvaðan hefur þú þetta lifandi vatn? 12 Ertu meiri en Jakob forfaðir okkar sem gaf okkur brunninn og drakk sjálfur úr honum og synir hans og fénaður?“
13 Jesús svaraði: „Hvern sem drekkur af þessu vatni mun aftur þyrsta 14 en hvern sem drekkur af vatninu er ég gef honum mun aldrei þyrsta að eilífu. Því vatnið, sem ég gef honum, verður í honum að lind sem streymir fram til eilífs lífs.“
15 Þá segir konan við hann: „Drottinn, gef mér þetta vatn svo að mig þyrsti ekki og ég þurfi ekki að fara hingað að ausa.“
16 Hann segir við hana: „Farðu, kallaðu á manninn þinn og komdu síðan hingað.“
17 Konan svaraði: „Ég á engan mann.“
Jesús segir við hana: „Rétt er það að þú eigir engan mann 18 því þú hefur átt fimm menn og sá sem þú átt nú er ekki þinn maður. Þetta sagðir þú satt.“
19 Konan segir við hann: „Drottinn, nú sé ég að þú ert spámaður. 20 Feður okkar hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli en þið segið að í Jerúsalem sé sá staður þar sem tilbiðja skuli.“
21 Jesús segir við hana: „Trú þú mér, kona. Sú stund kemur að þið munuð hvorki tilbiðja föðurinn á þessu fjalli né í Jerúsalem. 22 Þið tilbiðjið það sem þið þekkið ekki. Við tilbiðjum það sem við þekkjum því hjálpræðið kemur frá Gyðingum. 23 En sú stund kemur, já, hún er nú komin, er hinir sönnu tilbiðjendur munu tilbiðja föðurinn í anda og sannleika. Faðirinn leitar slíkra tilbiðjenda. 24 Guð er andi og þeir sem tilbiðja hann eiga að tilbiðja í anda og sannleika.“
25 Konan segir við hann: „Ég veit að Messías kemur – það er Kristur. Þegar hann kemur mun hann kunngjöra okkur allt.“
26 Jesús segir við hana: „Ég er hann, ég sem við þig tala.“
27 Í sama bili komu lærisveinar hans og furðuðu sig á því að hann var að tala við konu. Þó sagði enginn: „Hvað viltu?“ eða: „Hvað ertu að tala við hana?“
28 Nú skildi konan eftir skjólu sína, fór inn í borgina og sagði við menn: 29 „Komið og sjáið mann er sagði mér allt sem ég hef gert. Skyldi hann vera Kristur?“ 30 Þeir fóru úr borginni og komu til hans.
31 Meðan þessu fór fram báðu lærisveinarnir hann: „Rabbí, fá þér að eta.“
32 Hann svaraði þeim: „Ég hef mat að eta sem þið vitið ekki um.“
33 Þá sögðu lærisveinarnir sín á milli: „Skyldi einhver hafa fært honum að eta?“
34 Jesús sagði við þá: „Minn matur er að gera vilja þess sem sendi mig og fullna verk hans. 35 Segið þið ekki: Enn eru fjórir mánuðir, þá kemur uppskeran? En ég segi ykkur: Lítið upp og horfið á akrana, þeir eru fullþroskaðir til uppskeru. 36 Sá sem upp sker tekur þegar laun og safnar ávexti til eilífs lífs. Þá getur sá sem sáir samfagnað þeim sem upp sker. 37 Hér sannast orðtakið: Einn sáir og annar upp sker. 38 Ég sendi ykkur að skera upp það sem þið hafið ekki unnið við. Aðrir hafa erfiðað en þið njótið erfiðis þeirra.“
39 Margir Samverjar úr þessari borg trúðu á hann vegna orða konunnar sem vitnaði um það að hann hefði sagt henni allt sem hún hafði gert. 40 Þegar því Samverjarnir komu til hans báðu þeir hann að staldra við hjá sér. Var hann þar um kyrrt tvo daga.
41 Og miklu fleiri tóku trú þegar þeir heyrðu hann sjálfan. 42 Þeir sögðu við konuna: „Það er ekki lengur sakir orða þinna að við trúum því að við höfum sjálfir heyrt hann og vitum að hann er sannarlega frelsari heimsins.“

Annað tákn í Galíleu

43 Eftir þessa tvo daga fór Jesús þaðan til Galíleu. 44 En sjálfur hafði hann sagt að spámaður væri ekki metinn í föðurlandi sínu. 45 Þegar hann kom nú til Galíleu tóku Galíleumenn honum vel. Þeir höfðu sjálfir sótt hátíðina í Jerúsalem og séð allt sem hann gerði þar.
46 Nú kom Jesús aftur til Kana í Galíleu þar sem hann hafði gert vatn að víni. Í Kapernaúm var konungsmaður nokkur sem átti sjúkan son. 47 Þegar hann frétti að Jesús væri kominn frá Júdeu til Galíleu fór hann til hans og bað hann að koma niður eftir og lækna son sinn. En hann var dauðvona. 48 Þá sagði Jesús við hann: „Þið trúið ekki nema þið sjáið tákn og stórmerki.“
49 Konungsmaður bað hann: „Drottinn, kom þú áður en barnið mitt andast.“
50 Jesús svaraði: „Far þú, sonur þinn lifir.“
Maðurinn trúði því sem Jesús sagði við hann og fór af stað. 51 En meðan hann var á leiðinni ofan eftir mættu honum þjónar hans og sögðu að sonur hans væri á lífi.
52 Hann spurði þá hvenær honum hefði farið að létta og þeir svöruðu: „Í gær upp úr hádegi[ fór hitinn úr honum.“ 53 Þá sá faðirinn að það var á þeirri stundu þegar Jesús hafði sagt við hann: „Sonur þinn lifir.“ Og hann tók trú og allt hans heimafólk.
54 Þetta var annað táknið sem Jesús gerði þegar hann kom frá Júdeu til Galíleu.