1Hallelúja.
Gott er að syngja Guði vorum lof.
Það er yndislegt, honum hæfir lofsöngur.
2Drottinn endurreisir Jerúsalem,
safnar saman hinum tvístruðu Ísraels.
3Hann græðir þá sem hafa sundurkramið hjarta
og bindur um benjar þeirra.
4Hann ákveður tölu stjarnanna,
nefnir þær allar með nafni.
5Mikill er Drottinn vor og voldugur í mætti sínum,
speki hans ómælanleg.
6Drottinn styður hjálparlausa
en óguðlega fellir hann til jarðar.
7Syngið Drottni þakkargjörð,
leikið fyrir Guði vorum á gígju.
8Hann hylur himininn skýjum,
sér jörðinni fyrir regni,
lætur gras spretta á fjöllunum,
9gefur skepnunum fóður þeirra,
hrafnsungunum þegar þeir krunka.
10Hann hefur ekki mætur á styrk hestsins,
hrífst ekki af fráum fótum mannsins.
11Drottinn hefur þóknun á þeim sem óttast hann,
þeim sem setja von sína á miskunn hans.
12Lofa Drottin, Jerúsalem,
tigna þú Guð þinn, Síon,
13því að hann hefur gert sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum,
blessað börn þín sem í þér eru.
14Hann stillir til friðar við landamæri þín,
seður þig á úrvalshveiti.
15Hann sendir boðskap sinn um jörðina,
skjótt berst orð hans.
16Hann gefur snjó eins og ull,
stráir hrími sem ösku.
17Hann stráir hagli sínu eins og brauðmylsnu,
hver fær staðist frost hans?
18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna,
lætur vind sinn blása og vötnin renna.
19Hann boðar Jakobi orð sitt,
Ísrael lög sín og ákvæði.
20Slíkt hefur hann ekki gert fyrir neina aðra þjóð,
þær þekkja ekki lög hans.
Hallelúja.