Samson gengur að eiga konu af ætt Filistea

1 Samson fór niður til Timna og sá þar konu eina. Hún var ein af dætrum Filistea. 2 Síðan fór hann heim aftur, sagði föður sínum og móður frá þessu og mælti: „Ég sá konu nokkra í Timna. Hún er ein af dætrum Filistea. Fáið þið hana mér nú að eiginkonu.“ 3 En faðir hans og móðir sögðu við hann: „Er þá engin kona meðal dætra frænda þinna og meðal þjóðar minnar, að þú þurfir að fara og taka þér konu af Filisteum sem eru óumskornir?“ Samson svaraði föður sínum: „Fáðu mér hana því að mér líst vel á hana.“ 4 En faðir hans og móðir vissu ekki að þetta var verk Drottins og að hann var að leita færis á Filisteum en um þær mundir réðu Filistear yfir Ísrael.
5 Samson, faðir hans og móðir fóru þá niður til Timna. Þegar þau komu að víngörðum Timna kom ungt ljón öskrandi á móti honum.
6 Andi Drottins kom yfir hann og hann sleit það sundur eins og menn slíta sundur kiðling og hafði hann þó ekkert í hendinni. Hann sagði hvorki föður sínum né móður frá því sem hann hafði gert. 7 Síðan fór Samson og talaði við konuna og hún féll honum vel í geð. 8 Eftir nokkurn tíma kom hann aftur að sækja hana. Vék hann þá af leið til þess að sjá dauða ljónið og voru þá býflugur og hunang í ljónshræinu. 9 Hann tók það í lófa sér, hélt síðan áfram og át, fór til föður síns og móður og gaf þeim og þau átu. En ekki sagði hann þeim frá því að hann hefði tekið hunangið úr ljónshræinu.

Samson leggur gátu fyrir Filistea

10 Því næst fór faðir hans til konunnar og hélt Samson þar veislu því að sá var háttur ungra manna. 11 Þegar þeir sáu hann fengu þeir honum þrjátíu brúðarsveina sem skyldu vera með honum.
12 Samson sagði við þá: „Nú legg ég fyrir ykkur gátu. Ef þið getið ráðið hana á þessum sjö veisludögum og fundið merkingu hennar, þá skal ég gefa ykkur þrjátíu kyrtla og þrjátíu hátíðarklæðnaði. 13 En getið þið ekki ráðið hana skuluð þið gefa mér þrjátíu kyrtla og þrjátíu hátíðarklæðnaði.“ Þeir svöruðu honum: „Leggðu fyrir okkur gátuna svo að við fáum að heyra hana.“ 14 Þá sagði hann:
Æti gekk út af etanda
og sætleiki gekk út af hinum sterka.

Og liðu svo þrír dagar án þess að þeim tækist að ráða gátuna.
15 Á fjórða degi sögðu þeir við konu Samsonar: „Ginntu bónda þinn til að segja okkur ráðningu gátunnar, annars munum við brenna þig og hús föður þíns í eldi. Buðuð þið okkur til þess að féfletta okkur? Er því þannig varið?“
16 Þá grét kona Samsonar og sagði við hann: „Hatur hefur þú á mér en enga ást. Þú hefur lagt gátu fyrir samlanda mína en ekki sagt mér ráðningu hennar.“ Hann svaraði: „Ég hef ekki einu sinni sagt föður mínum og móður ráðningu hennar og ætti ég þá að segja þér hana?“ 17 Og hún grét og barmaði sér við hann alla sjö dagana sem veislan stóð og á sjöunda degi sagði hann henni ráðninguna af því að hún gekk svo fast á hann. En hún sagði samlöndum sínum ráðningu gátunnar. 18 Borgarmenn sögðu þá við hann á sjöunda degi áður en sól settist:
Hvað er sætara en hunang?
Og hvað er sterkara en ljón?

Samson sagði við þá:
Ef þið hefðuð ekki plægt með kvígu minni
hefðuð þið ekki ráðið gátu mína.

19 Þá kom andi Drottins yfir hann svo að hann fór ofan til Askalon og drap þar þrjátíu menn, tók klæðnaði þeirra og gaf þeim sem hátíðarklæði er ráðið höfðu gátuna. Hann varð ákaflega reiður og fór upp til húss föður síns. 20 En kona Samsonar giftist brúðarsveini hans sem hann hafði valið sér að svaramanni.