1Hlýddu nú á ræðu mína, Job,
ljáðu orðum mínum eyra.
2Ég hef lokið upp munni mínum,
tungan talar í gómi mínum.
3Ég tala af hjartans einlægni
og það sem ég veit segi ég í hreinskilni.
4Andi Guðs skapaði mig
og lífsandi Hins almáttka gefur mér líf.
5Svaraðu mér ef þú getur,
gakktu fram og flyttu mál þitt.
6Frammi fyrir Guði er ég eins og þú,
ég var líka mótaður úr leir.
7Ótti við mig þarf ekki að skelfa þig
og þvingun frá mér ekki að þjaka þig.
8En þú sagðir í eyru mín
og ég heyrði hljóm orðanna:
9„Ég er hreinn og syndlaus,
flekklaus og án sektar.
10Guð fann átyllu til að ásaka mig
og telur mig óvin sinn,
11hann setti fætur mína í gapastokk
og fylgist með allri breytni minni.“
12Í þessu efni hefurðu ekki rétt fyrir þér, svara ég,
því að Guð er meiri en maður.
13Hvers vegna hefurðu deilt við hann?
Hann svarar orðum mannsins engu.
14Guð getur talað á einn máta,
jafnvel tvo, án þess að menn gefi því gaum.
15Í draumi, í sýn um nótt,
þegar menn sofa djúpum svefni í rúmum sínum,
16opnar hann eyru manna
og skelfir þá með viðvörun
17til að hindra manninn í störfum sínum
og forða honum frá hroka.
18Hann bjargar lífi hans frá gröfinni,
frá því að fara yfir fljótið til undirheima.
19Einnig er maðurinn áminntur með kvölum í rúmi sínu
og sífelldu stríði í beinum sínum.
20Hann fær ógeð á mat,
missir lystina á eftirlætisrétti sínum,
21hold hans tærist og sést varla
og holdlausir limir hans sjást ekki lengur.
22 Líf hans færist nær gröfinni,
hann nálgast stað dauðra.
23 En sé engill hjá honum,
talsmaður, einn af þúsund
sem boða mönnunum hið rétta,
24 og miskunnar sig yfir hann og segir:
„Bjargaðu honum frá gröfinni,
ég hef fundið lausnargjald,“
25 þá styrkist hold hans af æskuþrótti,
hann snýr aftur til æskudaga sinna.
26 Hann biður til Guðs og hann miskunnar honum,
fær að sjá auglit hans og fagnar
og Guð gefur hinum dauðlega aftur réttlæti sitt.
27 Hann syngur fyrir menn og segir:
„Ég syndgaði og beygði það sem var beint
en hann galt ekki líku líkt,
28 hann leysti líf mitt frá gröfinni,
ég lifi og sé ljósið.“
29 Allt þetta gerir Guð fyrir manninn,
tvisvar eða þrisvar,
30 hann leiðir hann lifandi frá gröfinni
svo að ljós lífsins lýsi honum.
31 Hlýddu á, Job, hlustaðu á mig,
vertu nú hljóður svo að ég megi tala.
32 Hafirðu eitthvað að segja skaltu svara mér,
talaðu því að ég vildi að þú hefðir á réttu að standa.
33 En hafirðu ekkert að segja skaltu hlusta á mig,
vertu hljóður og ég skal kenna þér speki.