Vígsla helgidómsins

1 Drottinn ávarpaði Móse og sagði: 2 „Á fyrsta degi fyrsta mánaðarins skaltu reisa tjaldbúðina, samfundatjaldið. 3 Þar skaltu koma sáttmálsörkinni fyrir og hylja örkina með fortjaldinu. 4 Síðan skaltu koma inn með borðið og raða á það því sem því fylgir. Þá skaltu koma með ljósastikuna og hengja lampana á hana. 5 Þú skalt setja hið gullna reykelsisaltari fyrir framan sáttmálsörkina og setja upp forhengið fyrir inngang tjaldbúðarinnar. 6 Þú skalt koma brennifórnaraltarinu fyrir framan við innganginn í samfundatjaldið, 7 setja kerið á milli samfundatjaldsins og altarisins og hella í það vatni. 8 Þú skalt reisa forgarðinn umhverfis og setja forhengið fyrir hlið forgarðsins. 9 Þú skalt taka smurningarolíuna og smyrja tjaldbúðina og allt sem í henni er og helga hana ásamt öllum áhöldum svo að hún verði heilög. 10 Þú skalt einnig smyrja brennifórnaraltarið og öll áhöld þess og helga altarið svo að altarið verði háheilagt. 11 Þú skalt smyrja kerið ásamt stéttinni og helga það. 12 Síðan skaltu láta Aron og syni hans ganga fram að dyrum samfundatjaldsins og þvo þá með vatni. 13 Því næst skaltu skrýða Aron hinum helga skrúða, smyrja hann og helga hann svo að hann geti þjónað mér sem prestur. 14 Þá skaltu láta syni hans ganga fram, klæða þá í kyrtla 15 og smyrja þá síðan eins og þú smurðir föður þeirra svo að þeir geti þjónað mér sem prestar. Það skal gert svo að smurning þeirra veiti þeim ævarandi prestdóm frá kyni til kyns.“
16 Móse gerði í öllu nákvæmlega eins og Drottinn bauð honum.
17 Á fyrsta degi fyrsta mánaðarins á öðru árinu var tjaldbúðin reist. 18 Móse reisti tjaldbúðina, kom fyrir sökklunum, reisti upp þiljuborðin, kom þverslánum fyrir og reisti súlurnar. 19 Hann þandi tjaldið yfir búðina og setti tjaldþakið yfir það eins og Drottinn hafði boðið Móse.
20 Síðan tók hann sáttmálstáknið, setti það í örkina, kom stöngunum fyrir á örkinni og lagði lokið á hana. 21 Hann fór með örkina inn í tjaldbúðina, hengdi upp fortjaldið svo að það hyldi sáttmálsörkina eins og Drottinn hafði boðið Móse.
22 Hann setti borðið inn í samfundatjaldið við norðurhlið tjaldbúðarinnar, framan við fortjaldið, 23 og raðaði brauðum á það í röð frammi fyrir augliti Drottins eins og Drottinn hafði boðið Móse.
24 Hann setti ljósastikuna inn í samfundatjaldið við suðurhlið tjaldbúðarinnar 25 og hengdi upp lampana frammi fyrir augliti Drottins eins og Drottinn hafði boðið Móse.
26 Hann setti gullaltarið inn í samfundatjaldið framan við fortjaldið 27 og brenndi á því ilmandi reykelsi eins og Drottinn hafði boðið Móse.
28 Síðan setti hann upp hengið fyrir inngang tjaldbúðarinnar 29 og kom því næst brennifórnaraltarinu fyrir við innganginn í tjaldbúðina, samfundatjaldið, og færði brennifórn og kornfórn eins og Drottinn hafi boðið Móse.
30 Hann kom kerinu fyrir milli samfundatjaldsins og altarisins, hellti í það vatni til þvotta 31 og þeir Móse og Aron ásamt sonum hans þvoðu sér um hendur og fætur úr því. 32 Þegar þeir gengu inn í samfundatjaldið og að altarinu þvoðu þeir sér eins og Drottinn hafði boðið Móse.
33 Hann reisti forgarðinn umhverfis tjaldbúðina og altarið og setti upp hengi fyrir hlið forgarðsins. Þannig fullkomnaði Móse verkið.
34 Þá huldi skýið samfundatjaldið og dýrð Drottins fyllti tjaldbúðina 35 svo að Móse gat ekki komist inn í samfundatjaldið því að skýið lá á því og dýrð Drottins fyllti tjaldbúðina. 36 Í hvert sinn sem skýið hóf sig upp frá tjaldbúðinni lögðu Ísraelsmenn af stað á meðan á ferð þeirra stóð. 37 Ef skýið hóf sig ekki upp lögðu þeir ekki af stað fyrr en það hófst upp. 38 Því að ský Drottins var yfir bústaðnum á daginn en eldur á nóttunni fyrir augum allra Ísraelsmanna á öllu ferðalagi þeirra.