1 Fagnið, þér réttlátir, yfir Drottni,
hreinlyndum hæfir að syngja lof.
2Lofið Drottin með gígjum,
leikið fyrir hann á tístrengjaða hörpu.
3Syngið honum nýjan söng,
sláið strengina fagurlega og hrópið af fögnuði
4því að orð Drottins er áreiðanlegt
og öll hans verk eru í trúfesti gerð.
5Hann hefur mætur á réttlæti og rétti,
jörðin er full af gæsku Drottins.
6Fyrir orð Drottins voru himnarnir gerðir
og öll þeirra prýði fyrir anda munns hans.
7Hann safnaði vatni hafsins sem í belg,
kom djúpunum fyrir í forðabúri.
8Öll jörðin óttist Drottin,
allir jarðarbúar skelfist hann.
9Því að hann talaði – og það varð,
hann bauð – þá stóð það þar.
10Drottinn ónýtir ráð þjóðanna,
gerir áform þeirra að engu
11en ráð Drottins stendur stöðugt um aldur,
áform hjarta hans frá kyni til kyns.
12Sæl er sú þjóð sem á Drottin að Guði,
þjóðin sem hann valdi sér til eignar.
13Drottinn lítur niður af himni,
sér öll mannanna börn.
14Frá hásæti sínu virðir hann fyrir sér
alla jarðarbúa,
15hann sem skapaði hjörtu þeirra allra
og gefur gætur að öllum athöfnum þeirra.
16Eigi sigrar konungurinn fyrir gnótt herafla síns,
eigi bjargast kappinn fyrir ofurafl sitt.
17Svikull er víghestur til sigurs,
með ofurafli sínu bjargar hann ekki.
18En augu Drottins vaka yfir þeim sem óttast hann,
þeim er vona á miskunn hans.
19Hann frelsar þá frá dauða,
heldur lífinu í þeim í hungursneyð.
20Vér vonum á Drottin,
hann er hjálp vor og skjöldur.
21Yfir honum fagnar hjarta vort,
hans heilaga nafni treystum vér.
22 Miskunn þín, Drottinn, sé yfir oss
því að vér vonum á þig.