Elía

1Þá kom Elía fram, eldlegur spámaður,
orð hans brunnu eins og kyndill.
2 Hann lét hungursneyð koma yfir þjóðina
og fækkaði henni með ákefð sinni.
3 Hann hélt himninum luktum með orði Drottins
og kallaði þrívegis eld að ofan.
4 Hversu dáður varstu, Elía, fyrir þau undur er þú gerðir,
hver fær stært sig af að vera þinn jafni?
5 Þú vaktir látinn mann til lífsins,
hreifst hann úr helju með orði Hins hæsta.
6 Þú steyptir konungum í glötun
og lést dáða menn deyja á sóttarsæng.
7 Á Sínaí heyrðir þú ávíturnar,
á Hóreb orð um dóm og endurgjald.
8 Þú smurðir konunga til að koma fram hefndum
og spámenn til að feta í fótspor þín.
9 Þú varst hrifinn til himins í eldsveip,
í vagni sem eldhestar drógu.
10 Ritað er að þú sért reiðubúinn
að koma og sefa reiði Drottins áður en hún blossar upp,
sætta föður við son
og endurreisa ættkvíslir Jakobs.
11 Sælir eru þeir sem fá að sjá þig,
eins þeir sem sofnaðir eru í kærleika,
því að einnig vér munum lifa.

Elísa

12 Þegar hvirfilvindurinn huldi Elía
fylltist Elísa anda hans.
Hann lét eigi hlut sinn fyrir höfðingjum alla ævi
og lét engan ná valdi á sér.
13 Ekkert var honum ofvaxið,
jafnvel í gröfinni spáði hann.
14 Hann gerði máttarverk í lifanda lífi
og eftir dauðann voru verk hans undraverð.
15 Þrátt fyrir allt þetta iðraðist þjóðin ekki
og lét eigi af syndum sínum
uns hún var hrakin sem herfang úr landi sínu
og henni dreift um alla jörð.
Einungis örfáir voru af þjóðinni eftir skildir
ásamt leiðtoga af ætt Davíðs.
16 Sumir þeirra gerðu það sem Drottni þóknaðist
en aðrir syndguðu í æ ríkari mæli.

Hiskía og Jesaja

17 Hiskía víggirti borg sína
og leiddi vatn inn í hana.
Hann hjó sig gegnum björg með járnfleyg
og hlóð þró fyrir vatnið.
18 Á dögum hans gerði Sanheríb innrás,
sendi Rabsake gegn Hiskía og fór burt.
Rabsake hóf upp arm sinn gegn Síon
og var gífuryrtur í hroka sínum.
19 Þá féllst Júdamönnum hugur, hendur þeirra skulfu
og þeir engdust líkt og konur í barnsnauð.
20 Þeir ákölluðu miskunnsaman Drottin
og fórnuðu til hans höndum.
Jafnskjótt heyrði Hinn heilagi á himni bæn þeirra
og sendi Jesaja til að frelsa þá.
21 Drottinn laust herbúðir Assýríumanna
og engill hans gereyddi þær.
22 Enda gerði Hiskía það sem Drottni er geðfellt,
fylgdi staðfastur vegi forföður síns, Davíðs,
eins og Jesaja spámaður bauð honum.
Jesaja var mikill spámaður og sýnir hans sannar.
23 Á dögum hans færðist sólin aftur
og hann lengdi líf konungs.
24 Af mikilli andagift sá hann endalok alls
og huggaði þá sem harmþrungnir voru á Síon.
25 Hann sagði fyrir um allt sem verða mun um alla framtíð,
hulda atburði sem enn eru eigi orðnir.