Heillafórn

1 Sé gjöf hans heillafórn og hann ætli að færa gjöf af nautpeningi skal hann færa lýtalaust karldýr eða kvendýr fram fyrir auglit Drottins. 2 Hann skal leggja hönd sína á höfuð fórnardýrsins og slátra því við inngang samfundatjaldsins. Synir Arons, prestarnir, skulu dreypa blóðinu á allar hliðar altarisins.
3 Hann skal færa Drottni hluta af heillafórninni sem eldfórn: netjuna sem hylur iðrin og allan mörinn, 4 bæði nýrun ásamt nýrnamörnum, sem er innan á mölunum, og lifrarblaðið sem hann skal skilja frá við nýrun. 5 Synir Arons skulu láta þennan hluta líða upp í reyk af altarinu ásamt brennifórninni á viðnum sem er á altariseldinum.
Þetta er eldfórn, Drottni þekkur ilmur.
6 Sé gjöfin sem hann færir Drottni að heillafórn tekin af sauðfénaði skal hann færa fram lýtalaust karldýr eða kvendýr.
7 Færi hann sauðkind að gjöf skal hann færa hana fram fyrir auglit Drottins, 8 leggja hönd sína á höfuð fórnardýrsins og slátra því fyrir framan samfundatjaldið. Synir Arons skulu dreypa blóðinu á allar hliðar altarisins.
9 Því næst skal hann færa Drottni hluta af heillafórninni sem eldfórn: mörinn, rófuna alla, og skal taka hana af þétt við rófubeinið, netjuna sem hylur iðrin og allan mörinn, 10 bæði nýrun ásamt nýrnamörnum, sem er innan á mölunum, og lifrarblaðið sem hann skal skilja frá við nýrun.
11 Presturinn skal láta það líða upp í reyk af altarinu.
Þetta er fæða, eldfórn handa Drottni.
12 Sé gjöf hans geit skal hann færa hana fram fyrir auglit Drottins, 13 leggja hönd sína á höfuð hennar og slátra henni fyrir framan samfundatjaldið. Synir Arons skulu dreypa blóðinu á allar hliðar altarisins.
14 Því næst skal hann færa Drottni hluta af því sem gjöf, eldfórn: netjuna sem hylur iðrin og allan mörinn, 15 bæði nýrun ásamt nýrnamörnum, sem er innan á mölunum, og lifrarblaðið sem hann skal skilja frá við nýrun.
16 Presturinn skal láta það líða upp í reyk af altarinu.
Þetta er fæða, eldfórn, Drottni þekkur ilmur.
Allur mör er eign Drottins. 17 Þetta skal vera ævarandi regla hjá ykkur frá kynslóð til kynslóðar hvar sem þið búið: Þið skuluð hvorki neyta mörs né blóðs.“