Fjórða sýn: Jósúa æðsti prestur

1 Þessu næst lét hann mig sjá Jósúa æðsta prest. Hann stóð frammi fyrir engli Drottins en á hægri hönd honum Satan til að flytja kæru sína gegn honum. 2 En Drottinn mælti til Satans: „Drottinn ávíti þig, ákærandi. Er þessi maður ekki sem brandur úr báli dreginn?“ 3 En Jósúa var í óhreinum klæðum þar sem hann stóð andspænis englinum. 4 Engillinn tók þá til máls og sagði við þá sem stóðu frammi fyrir honum: „Færið hann úr þessum óhreinu klæðum.“ Síðan sagði hann við Jósúa: „Sjá, ég nem burt sök þína og læt færa þig í skrúða.“ 5 Og hann sagði: „Látið hreina ennisspöng á höfuð hans.“ Þeir létu þá hreina ennisspöng á höfuð hans og færðu hann í skrúðann. Og engill Drottins stóð hjá. 6 Og engill Drottins ávarpaði Jósúa með þessum orðum:
7 Svo segir Drottinn allsherjar:
Ef þú gengur á mínum vegum
og heldur boðorð mín
skaltu einnig stjórna húsi mínu
og gæta forgarða þess
og ég heimila þér að samneyta
þessum þjónum mínum.
8Hlýddu á, Jósúa æðsti prestur,
þú og félagar þínir, sem sitja andspænis þér,
þeir eru tákn þess
að ég mun láta Sprota, þjón minn, koma
9því að hér er steinninn sem ég set fram fyrir Jósúa,
einn steinn og á honum sjö augu.
Ég gref á hann letrið,
segir Drottinn allsherjar,
og á einum degi nem ég burt sök þessa lands.

10 Á þeim degi, segir Drottinn allsherjar, mun hver maður bjóða granna sínum undir vínvið sinn og fíkjutré.