Með hvaða valdi?

1 Eitt sinn var Jesús að kenna fólkinu í helgidóminum og flutti fagnaðarerindið. Þá gengu æðstu prestarnir og fræðimennirnir ásamt öldungunum til hans 2 og sögðu: „Seg þú okkur, með hvaða valdi gerir þú þetta? Hver hefur gefið þér þetta vald?“
3 Hann svaraði þeim: „Ég vil og leggja spurningu fyrir ykkur. Segið mér: 4 Hver fól Jóhannesi að skíra, var það Guð eða voru það menn?“
5 Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: „Ef við svörum: Það var Guð, spyr hann: Hví trúðuð þið honum þá ekki? 6 Ef við svörum: Það voru menn, mun allt fólkið grýta okkur því að menn eru sannfærðir um að Jóhannes sé spámaður.“ 7 Þeir kváðust því ekki vita hver fól honum það.
8 Jesús sagði við þá: „Ég segi ykkur þá ekki heldur hver fól mér að gera þetta.“

Vondir vínyrkjar

9 Og Jesús tók að segja fólkinu dæmisögu þessa: „Maður nokkur plantaði víngarð og seldi hann vínyrkjum á leigu, fór síðan úr landi til langdvala. 10 Á settum tíma sendi hann þjón til vínyrkjanna að þeir fengju honum hlut af ávexti víngarðsins en vínyrkjarnir börðu hann og sendu burt tómhentan. 11 Aftur sendi hann annan þjón. Þeir börðu hann einnig og svívirtu og sendu burt tómhentan. 12 Og enn sendi hann hinn þriðja en þeir veittu honum einnig áverka og köstuðu honum út. 13 Þá sagði eigandi víngarðsins: Hvað á ég að gera? Ég sendi son minn elskaðan. Má vera þeir virði hann. 14 En er vínyrkjarnir sáu hann báru þeir saman ráð sín og sögðu: Þetta er erfinginn. Drepum hann, þá fáum við arfinn. 15 Og þeir köstuðu honum út fyrir víngarðinn og drápu hann.
Hvað mun nú eigandi víngarðsins gera við þá? 16 Hann mun koma, tortíma vínyrkjum þessum og fá öðrum víngarðinn.“
Þegar þeir heyrðu þetta sögðu þeir: „Verði það aldrei.“
17 Jesús horfði á fólkið og mælti: „Hvað merkir þá ritning þessi:
Steinninn sem smiðirnir höfnuðu
er orðinn að hyrningarsteini.
18Hver sem fellur á þennan stein mun sundur molast
og þann sem hann fellur á mun hann sundur merja.“

19 Fræðimennirnir og æðstu prestarnir vildu leggja hendur á hann á sömu stundu en óttuðust fólkið. Þeir skildu að hann átti við þá með dæmisögu þessari.

Keisarinn og Guð

20 Þeir höfðu gætur á Jesú og sendu njósnarmenn er létust vera einlægir. Þeir áttu að láta hann tala af sér svo að þeir mættu framselja hann í hendur og á vald landstjórans. 21 Þeir spurðu hann: „Meistari, við vitum að þú talar og kennir rétt og gerir þér engan mannamun heldur kennir Guðs veg í sannleika. 22 Leyfist okkur að gjalda keisaranum skatt eða ekki?“
23 En hann merkti flærð þeirra og sagði við þá: 24 „Sýnið mér denar. Hvers mynd og nafn er skráð á hann?“
Þeir sögðu: „Keisarans.“
25 En hann sagði við þá: „Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er.“
26 Og þeir gátu ekki látið hann tala af sér í áheyrn fólksins en undruðust svar hans og þögðu.

Guð lifenda

27 Þá komu nokkrir saddúkear, en þeir neita því að upprisa sé til, og sögðu við Jesú: 28 „Meistari, Móse segir okkur í ritningunum að deyi maður kvæntur en barnlaus skuli bróðir hans ganga að eiga ekkjuna og vekja honum niðja. 29 Nú voru sjö bræður. Sá fyrsti tók sér konu og dó barnlaus. 30 Gekk þá annar bróðirinn 31 og síðan hinn þriðji að eiga hana og eins allir sjö og létu þeir engin börn eftir sig er þeir dóu. 32 Síðast dó og konan. 33 Kona hvers þeirra verður hún í upprisunni? Allir sjö höfðu þeir átt hana.“
34 Jesús svaraði þeim: „Börn þessarar aldar kvænast og giftast 35 en þau sem þykja þess verð að rísa upp frá dauðum og lifa í komandi veröld kvænast hvorki né giftast. 36 Þau geta ekki heldur dáið framar, þau eru englum jöfn, þau eru risin frá dauðum og eru börn Guðs. 37 En að dauðir rísi upp, það hefur jafnvel Móse sýnt í sögunni um þyrnirunninn er hann kallar Drottin Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs. 38 Ekki er hann Guð dauðra, heldur lifenda því að honum lifa allir.“
39 Þá sögðu nokkrir fræðimannanna: „Vel mælt, meistari.“ 40 En þeir þorðu ekki framar að spyrja hann neins.

Kristur er Drottinn

41 Jesús sagði við þá: „Hvernig geta menn sagt að Kristur sé sonur Davíðs? 42 Davíð segir sjálfur í Sálmunum:
Drottinn sagði við minn drottin:
Set þig mér til hægri handar
43 þangað til ég geri óvini þína að fótskör þinni.
44 Davíð kallar hann drottin, hvernig getur hann þá verið sonur hans?“

Viðvörun

45 Jesús sagði við lærisveina sína í áheyrn alls fólksins: 46 „Varist fræðimennina sem fýsir að ganga í síðskikkjum og er ljúft að láta heilsa sér á torgum, vilja skipa æðsta bekk í samkundum og hefðarsæti í veislum. 47 Þeir mergsjúga ekkjur og hafa af þeim heimili þeirra en flytja langar bænir að yfirskini. Þeir munu fá því þyngri dóm.“