Málaferli í söfnuðinum

1 Hvernig getur nokkur ykkar, sem á sökótt við annan, fengið af sér að fara með málið fyrir dóm ranglátra en ekki heilagra? 2 Eða vitið þið ekki að heilagir eiga að dæma heiminn? Og ef þið eigið að dæma heiminn eruð þið þá óverðugir að dæma í hinum minnstu málum? 3 Vitið þið eigi að við eigum að dæma engla? Hvað þá heldur hversdagsleg efni! 4 Þegar þið eigið að dæma um hversdagsleg efni, þá kveðjið þið að dómurum menn sem að engu eru hafðir í söfnuðinum.
5 Ég segi það ykkur til blygðunar. Er þá enginn vitur til á meðal ykkar sem skorið geti úr málum milli safnaðarmanna?[ 6 Í stað þess eigið þið í málum innbyrðis og það fyrir vantrúuðum.
7 Það út af fyrir sig að þið standið í málaferlum hvert við annað er í sjálfu sér hnekkir fyrir ykkur. Hví líðið þið ekki heldur órétt? Hví látið þið ekki heldur hafa af ykkur? 8 Þess í stað gerið þið öðrum rangt til og hafið af þeim og það trúsystkinum. 9 Vitið þið ekki að ranglátir munu ekki erfa Guðs ríki? Villist ekki! Enginn sem er saurlífur, dýrkar falsguði eða lifir í hórdómi, enginn karlmaður sem lætur nota sig eða notar aðra til ólifnaðar, 10 enginn þjófur eða fégráðugur, vínsvallari, rógberi eða fjársvikari fær að erfa Guðs ríki. 11 Og þannig voruð þið sumir hverjir. En þið létuð laugast, létuð helgast, eruð réttlættir. Það gerði nafn Drottins Jesú Krists og andi vors Guðs.

Líkaminn musteri heilags anda

12 Allt er mér leyfilegt en ekki er allt gagnlegt. Allt er mér leyfilegt en ég má ekki láta neitt fá vald yfir mér. 13 Maturinn er fyrir magann og maginn fyrir matinn en Guð mun hvort tveggja gera að engu. En líkaminn er ekki fyrir saurlífi heldur fyrir Drottin og Drottinn fyrir líkamann. 14 Guð hefur uppvakið Drottin með mætti sínum og mun á sama hátt uppvekja okkur. 15 Vitið þið ekki að líkamar ykkar eru limir Krists? Á ég þá að taka limi Krists og gera þá að skækjulimum? Fjarri fer því. 16 Vitið þið ekki að sá sem liggur með skækju verður ásamt henni einn líkami? Því að ritað er: „Þau tvö munu verða einn líkami.“ 17 En sá er samlagar sig Drottni er einn andi með honum.
18 Forðist saurlifnaðinn! Sérhver önnur synd, sem maðurinn drýgir, er fyrir utan líkama hans. En saurlífismaðurinn syndgar á móti eigin líkama. 19 Vitið þið ekki að líkami ykkar er musteri heilags anda sem í ykkur er og þið hafið frá Guði? Þið eigið ykkur ekki sjálf. 20 Þið eruð verði keypt. Vegsamið því Guð með líkama ykkar.