Svik Júdasar

1 Nú fór í hönd hátíð ósýrðu brauðanna, sú er nefnist páskar. 2 Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér hvernig þeir gætu ráðið Jesú af dögum því að þeir voru hræddir við fólkið.
3 Þá fór Satan í Júdas sem kallaður var Ískaríot og var í tölu þeirra tólf. 4 Hann fór og ræddi við æðstu prestana og varðforingjana um það hvernig hann skyldi framselja þeim Jesú. 5 Þeir urðu glaðir við og hétu honum fé fyrir. 6 Hann gekk að því og leitaði færis að framselja hann þeim þegar fólkið væri fjarri.

Búið til páskamáltíðar

7 Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom er slátra skyldi páskalambinu 8 sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði: „Farið og búið til páskamáltíðar fyrir okkur.“
9 Þeir sögðu við hann: „Hvar vilt þú að við búum hana?“
10 En hann sagði við þá: „Þegar þið komið inn í borgina mætir ykkur maður sem ber vatnsker. Fylgið honum inn þangað sem hann fer 11 og segið við húsráðandann: Meistarinn spyr þig: Hvar er herbergið þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum? 12 Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum. Hafið þar viðbúnað.“ 13 Þeir fóru og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.

Heilög kvöldmáltíð

14 Og er stundin var komin gekk Jesús til borðs og postularnir með honum. 15 Og hann sagði við þá: „Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður áður en ég líð. 16 Því ég segi yður: Eigi mun ég framar neyta hennar fyrr en hún fullkomnast í Guðs ríki.“
17 Þá tók hann kaleik, gerði þakkir og sagði: „Takið þetta og skiptið með yður. 18 Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins fyrr en Guðs ríki kemur.“
19 Og hann tók brauð, gerði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði: „Þetta er líkami minn sem fyrir yður er gefinn. Gerið þetta í mína minningu.“ 20 Eins tók hann kaleikinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: „Þessi kaleikur er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði sem fyrir yður er úthellt.[
21 En sjá, hönd þess er mig svíkur er á borðinu hjá mér. 22 Mannssonurinn fer að sönnu þá leið sem ákveðin er en vei þeim manni sem því veldur að hann verður framseldur.“
23 Og þeir tóku að spyrjast á um það hver þeirra mundi verða til þess að gera þetta.

Hver er mestur

24 Og þeir fóru að metast um hver þeirra væri talinn mestur. 25 En Jesús sagði við þá: „Konungar þjóða drottna yfir þeim og valdhafar þeirra kallast velgjörðamenn. 26 En eigi sé yður svo farið heldur sé hinn mesti yðar á meðal sem væri hann yngstur og foringinn sem þjónn. 27 Því hvort er sá meiri sem situr til borðs eða hinn sem þjónar? Er það ekki sá sem situr til borðs? Samt er ég meðal yðar eins og þjónninn.
28 En það eruð þér sem hafið staðið með mér í freistingum mínum. 29 Og yður fæ ég ríki í hendur, eins og faðir minn hefur fengið mér, 30 að þér megið eta og drekka við borð mitt í ríki mínu, sitja í hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.

Ég hef beðið fyrir þér

31 Símon, Símon, Satan krafðist að fá að sælda yður eins og hveiti svo að hismið kæmi í ljós. 32 En ég hef beðið fyrir þér að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú trúsystkin þín[ þegar þú ert snúinn við.“
33 En Símon sagði við hann: „Drottinn, ég er reiðubúinn að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða.“
34 Jesús mælti: „Ég segi þér, Pétur: Áður en hani galar í dag munt þú þrisvar hafa neitað því að þú þekkir mig.“

Það rætist sem ritað er

35 Og hann sagði við þá: „Þegar ég sendi yður út án pyngju og mals og skólausa, brast yður þá nokkuð?“
Þeir svöruðu: „Nei, ekkert.“
36 Þá sagði hann við þá: „En nú skal sá er pyngju hefur taka hana með sér og eins sá er mal hefur og hinn sem ekkert á selji yfirhöfn sína og kaupi sverð. 37 Því ég segi yður að þessi ritning á að rætast á mér: Með illvirkjum var hann talinn. Og nú er að fullnast það sem um mig er ritað.“
38 En þeir sögðu: „Drottinn, hér eru tvö sverð.“
Og hann sagði við þá: „Það er nóg.“

Í Getsemane

39 Síðan fór Jesús út og gekk, eins og hann var vanur, til Olíufjallsins. Og lærisveinarnir fylgdu honum. 40 Þegar hann kom á staðinn sagði hann við þá: „Biðjið að þið fallið ekki í freistni.“
41 Og hann vék frá þeim svo sem steinsnar, féll á kné, baðst fyrir og sagði: 42 „Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kaleik frá mér! En verði þó ekki minn heldur þinn vilji.“ [ 43 Þá birtist honum engill af himni sem styrkti hann. 44 Og hann komst í dauðans angist og baðst enn ákafar fyrir en sveiti hans varð eins og blóðdropar er féllu á jörðina.][
45 Hann stóð upp frá bæn sinni, kom til lærisveinanna og fann þá sofandi, örmagna af hryggð. 46 Og hann sagði við þá: „Hví sofið þið? Rísið upp og biðjið að þið fallið ekki í freistni.“

Tekinn höndum

47 Meðan Jesús var enn að tala kom flokkur manna og fremstur fór einn hinna tólf, Júdas, áður nefndur. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann. 48 Jesús sagði við hann: „Júdas, svíkur þú Mannssoninn með kossi?“
49 Þeir sem með honum voru sáu að hverju fór og sögðu: „Drottinn, eigum við ekki að bregða sverði?“ 50 Og einn þeirra hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað.
51 Þá sagði Jesús: „Hér skal staðar nema.“ Og hann snart eyrað og læknaði hann.
52 Þá sagði Jesús við æðstu prestana, varðforingja helgidómsins og öldungana sem komnir voru á móti honum: „Eruð þið að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja? 53 Daglega var ég með ykkur í helgidóminum og þið lögðuð ekki hendur á mig. En þetta er ykkar tími, nú ræður máttur myrkranna.“

Pétur afneitar

54 En þeir tóku Jesú höndum og leiddu brott og fóru með hann í hús æðsta prestsins. Pétur fylgdi eftir álengdar. 55 Menn höfðu kveikt eld í miðjum garðinum og sátu við hann og Pétur settist meðal þeirra. 56 En þerna nokkur sá hann sitja í bjarmanum, hvessti á hann augun og sagði: „Þessi maður var líka með honum.“
57 Því neitaði hann og sagði: „Kona, ég þekki hann ekki.“
58 Litlu síðar sá annar maður Pétur og sagði: „Þú ert líka einn af þeim.“
En Pétur svaraði: „Nei, maður minn, það er ég ekki.“
59 Og að liðinni um það bil einni stund fullyrti enn annar þetta og sagði: „Víst var þessi líka með honum enda Galíleumaður.“
60 Pétur mælti: „Ekki skil ég hvað þú átt við, maður.“
Og jafnskjótt sem hann sagði þetta gól hani. 61 Og Drottinn vék sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Drottins er hann mælti við hann: „Áður en hani galar í dag muntu þrisvar afneita mér.“ 62 Og hann gekk út og grét beisklega.

Jesús hæddur

63 En þeir menn sem gættu Jesú hæddu hann og börðu, 64 huldu andlit hans og sögðu: „Þú ert spámaður, segðu hver sló þig.“ 65 Og marga aðra svívirðu sögðu þeir við hann.

Fyrir ráðinu

66 Þegar dagur rann kom öldungaráðið saman, bæði æðstu prestar og fræðimenn, og létu færa hann fyrir ráðsfund sinn. 67 Þeir sögðu: „Ef þú ert Kristur, þá segðu okkur það.“
En Jesús sagði við þá: „Þótt ég segi ykkur það munuð þið ekki trúa 68 og ef ég spyr ykkur svarið þið ekki. 69 En upp frá þessu mun Mannssonurinn sitja til hægri handar almáttugum Guði.“
70 Þá spurðu þeir allir: „Ert þú þá sonur Guðs?“
Og hann sagði við þá: „Þið segið að ég sé sá.“
71 En þeir sögðu: „Hvað þurfum við nú framar vitnis við? Við höfum sjálfir heyrt það af munni hans.“