Það sem Guð hefur tengt

1 Jesús tók sig upp þaðan og hélt til byggða Júdeu handan Jórdanar. Fjöldi fólks safnast enn til hans og hann kenndi því eins og hann var vanur. 2 Farísear komu og spurðu Jesú hvort maður mætti skilja við konu sína. Þeir vildu reyna hann.
3 Hann svaraði þeim: „Hvað hefur Móse boðið ykkur?“
4 Þeir sögðu: „Móse leyfði að rita skilnaðarbréf og skilja við hana.“
5 Jesús mælti þá til þeirra: „Hann ritaði ykkur þetta boðorð vegna þverúðar ykkar 6 en frá upphafi sköpunar gerði Guð þau karl og konu. 7 Fyrir því skal maður yfirgefa föður sinn og móður og bindast konu sinni[ 8 og þau tvö skulu verða einn maður. Þannig eru þau ekki framar tvö heldur einn maður.[ 9 Það sem Guð hefur tengt saman má maður eigi sundur skilja.“
10 Þegar lærisveinarnir voru komnir inn spurðu þeir Jesú aftur um þetta. 11 En hann sagði við þá: „Sá sem skilur við konu sína og kvænist annarri drýgir hór gegn henni. 12 Og ef kona skilur við mann sinn og giftist öðrum drýgir hún hór.“

Slíkra er Guðs ríki

13 Menn færðu börn til Jesú að hann snerti þau en lærisveinarnir átöldu þá. 14 Þegar Jesús sá það sárnaði honum og hann mælti við þá: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er Guðs ríki. 15 Sannlega segi ég ykkur: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn mun aldrei inn í það koma.“ 16 Og Jesús tók þau sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau.

Eins er þér vant

17 Þegar Jesús var að leggja af stað kom maður hlaupandi, féll á kné fyrir honum og spurði hann: „Góði meistari, hvað á ég að gera til þess að öðlast eilíft líf?“
18 Jesús sagði við hann: „Hví kallar þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn. 19 Þú kannt boðorðin: Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki drýgja hór, þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni, þú skalt ekki pretta, heiðra föður þinn og móður.“
20 Hinn svaraði honum: „Meistari, alls þessa hef ég gætt frá æsku.“
21 Jesús horfði á hann með ástúð og sagði við hann: „Eins er þér vant. Far þú, sel allt sem þú átt og gef fátækum og munt þú fjársjóð eiga á himni. Kom síðan og fylg mér.“ 22 En hann varð dapur í bragði við þessi orð og fór burt hryggur enda átti hann miklar eignir.
23 Þá leit Jesús í kring og sagði við lærisveina sína: „Hve torvelt verður þeim sem auðinn hafa að ganga inn í Guðs ríki.“
24 Lærisveinunum brá mjög við orð Jesú en hann sagði aftur við þá: „Börn, hve torvelt er að komast inn í Guðs ríki. 25 Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auðmanni að komast inn í Guðs ríki.“
26 En þeir urðu steini lostnir og sögðu sín á milli: „Hver getur þá orðið hólpinn?“
27 Jesús horfði á þá og sagði: „Menn hafa engin ráð til þessa en Guði er ekkert um megn.“
28 Þá sagði Pétur við hann: „Við yfirgáfum allt og fylgdum þér.“
29 Jesús sagði: „Sannlega segi ég ykkur að enginn hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, móður eða föður, börn eða akra vegna mín og fagnaðarerindisins 30 án þess að hann fái hundraðfalt aftur, nú á þessum tíma heimili, bræður og systur, mæður, börn og akra, jafnframt ofsóknum, og í hinum komanda heimi eilíft líf. 31 En margir hinir fyrstu munu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.“

Upp til Jerúsalem

32 Þeir voru nú á leið upp til Jerúsalem. Jesús gekk á undan þeim en þeir voru skelfdir og þau sem eftir fylgdu voru hrædd. Og enn tók Jesús til sín þá tólf og fór að segja þeim hvað fram við sig ætti að koma. 33 „Nú förum við upp til Jerúsalem. Þar verður Mannssonurinn framseldur æðstu prestum og fræðimönnum. Þeir munu dæma hann til dauða og framselja hann heiðingjum. 34 Og þeir munu hæða hann, hrækja á hann, húðstrýkja og lífláta en eftir þrjá daga mun hann upp rísa.“

Sá er mikill vill verða

35 Þá komu til Jesú Jakob og Jóhannes, synir Sebedeusar, og sögðu við hann: „Meistari, okkur langar að þú gerir fyrir okkur það sem við ætlum að biðja þig.“
36 Hann spurði þá: „Hvað viljið þið að ég geri fyrir ykkur?“
37 Þeir svöruðu: „Veit okkur að við fáum að sitja þér við hlið í dýrð þinni, annar til hægri handar þér og hinn til vinstri.“
38 Jesús sagði við þá: „Þið vitið ekki hvers þið biðjið. Getið þið drukkið þann kaleik, sem ég drekk, eða skírst þeirri skírn sem ég skírist?“
39 Þeir sögðu við hann: „Það getum við.“
Jesús mælti: „Þann kaleik, sem ég drekk, munuð þið drekka og þið munuð skírast þeirri skírn sem ég skírist. 40 En ég ræð því ekki hver situr mér til hægri handar eða vinstri. Það veitist þeim sem það er fyrirbúið.“
41 Þegar hinir tíu heyrðu þetta gramdist þeim við þá Jakob og Jóhannes. 42 En Jesús kallaði þá til sín og mælti: „Þið vitið að þeir sem teljast ráða fyrir þjóðum drottna yfir þeim og höfðingjar þeirra láta menn kenna á valdi sínu.
43 En eigi sé svo meðal ykkar heldur sé sá sem mikill vill verða meðal ykkar þjónn ykkar. 44 Og sá er vill fremstur vera meðal ykkar sé allra þræll. 45 Því að Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir alla.“

Blindur beiningamaður

46 Þeir komu til Jeríkó. Og þegar Jesús fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður. 47 Þegar hann heyrði að þar færi Jesús frá Nasaret tók hann að hrópa: „Sonur Davíðs, Jesús, miskunna þú mér!“ 48 Margir höstuðu á hann að hann þegði en hann hrópaði því meir: „Sonur Davíðs, miskunna þú mér!“
49 Jesús nam staðar og sagði: „Kallið á hann.“
Þeir kalla á blinda manninn og segja við hann: „Vertu hughraustur, statt upp, hann kallar á þig.“
50 Blindi maðurinn kastaði frá sér yfirhöfn sinni, spratt á fætur og kom til Jesú.
51 Jesús spurði hann: „Hvað vilt þú að ég geri fyrir þig?“
Blindi maðurinn svaraði honum: „Rabbúní,[ að ég fái aftur sjón.“
52 Jesús sagði við hann: „Far þú, trú þín hefur bjargað þér.“
Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni.