1Hafi menn valið þig veislustjóra, ofmetnast ekki,
ver heldur sem jafningi þeirra.
Huga fyrst að því sem þeim kemur,
tak þér síðan sæti.
2 Þegar þú hefur gert allt sem þér ber máttu setjast til borðs
svo að þú getir fagnað með hinum
og hlotið heiður fyrir vel unnið verk.
3 Tala þú, öldungur, því að það er þinn réttur
en með góðri dómgreind og spill ekki tónlist.
4 Haf eigi uppi mælgi er á annað er hlustað
og lát ekki í ótíma ljós þitt skína.
5 Eins og roðasteinn á innsiglishring af gulli
er tónlistarflutningur við samdrykkju.
6 Eins og smaragðsinnsigli greypt í gull
er strengleikur með ljúfu víni.
7 Tala þú, ungi maður, ef þú mátt til
og eigi nema tvisvar og þrábeðinn.
8 Kom þér að efni og vertu gagnorður,
sýn að þú veist þínu viti en kannt að þegja.
9 Haf þig eigi frammi meðal höfðingja
og lát ekki móðan mása meðal öldunga.
10 Eins og elding fer fyrir þrumu
fer hyllin fyrir hæverskum manni.
11 Stattu upp í tíma og rektu ekki lestina,
haltu rakleiðis heim og tef ekki.
12 Þar getur þú glaðst og gert sem þú vilt
en syndga eigi með stærilæti í orðum.
13 Síðan skalt þú lofa hann sem skapaði þig
og mettar þig gæðum sínum.

Óttist Drottin og haldið lögmálið

14Sá sem óttast Drottin hlýtir leiðsögn hans,
þeir sem árla leita hans munu náðar njóta.
15 Sá sem rannsakar lögmálið eignast auð þess
en hræsnara verður það til falls.
16 Þeir sem óttast Drottin öðlast skilning á réttlæti
og úrskurðir þeirra lýsa sem ljós.
17 Syndarinn tekur eigi ávítum,
hann túlkar lögmálið eins og honum sýnist.
18 Hygginn maður tekur ætíð ábendingum
n hrokafullur útlendingur fer ávallt sínu fram.
19 Án yfirvegunar skaltu ekkert gera,
þá þarftu ekki að iðrast að unnu verki.
20 Legg ei leið þína um ójafnan veg
svo að þú hrasir þar ekki um steina.
21 Vertu eigi ugglaus þó að gatan sé greið.
22 Gæt þín jafnvel fyrir eigin börnum.
23 Treystu á sjálfan þig í hverju verki,
einnig það er að halda boðorðin.
24 Sá er treystir lögmálinu heldur boðorðin,
sá sem treystir Drottni mun eigi hljóta skaða.