Þingið í Síkem

1 Nú stefndi Jósúa öllum ættbálkum Ísraels saman í Síkem. Hann kvaddi til öldunga Ísraels, höfðingja hans, dómara og embættismenn og þeir gengu fram fyrir auglit Guðs.
2 Þá ávarpaði Jósúa allt fólkið:
„Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Feður ykkar, þeir Tara, faðir Abrahams og Nahors, bjuggu í fyrndinni handan við Efrat og þjónuðu öðrum guðum. 3 Þá sótti ég Abraham, forföður ykkar, yfir um Efrat og leiddi hann um allt Kanaansland og gaf honum fjölmarga niðja. Ég gaf honum Ísak 4 og Ísak gaf ég Jakob og Esaú. Ég fékk Esaú Seírfjalllendið og hann tók það til eignar en Jakob og synir hans fóru suður til Egyptalands. 5 Þá sendi ég Móse og Aron og ég laust Egyptaland með því sem ég vann þar og leiddi ykkur þaðan. 6 Þegar ég leiddi forfeður ykkar út úr Egyptalandi komuð þið að hafinu. Egyptar veittu forfeðrum ykkar eftirför að Sefhafinu með hervögnum og riddurum. 7 Þá hrópuðu forfeður ykkar til Drottins um hjálp og hann lagði sorta milli ykkar og Egyptanna og steypti hafinu yfir þá svo að það huldi þá. Með eigin augum sáuð þið hvernig ég fór með Egypta. Því næst dvöldust þið lengi í eyðimörkinni 8 og ég leiddi ykkur til lands Amoríta sem bjuggu handan Jórdanar. Þeir réðust á ykkur en ég seldi þá ykkur í hendur. Þið tókuð land þeirra til eignar og ég tortímdi þeim fyrir ykkur. 9 Balak Sippórsson Móabskonungur tók þá að ráðast á Ísrael. Hann sendi eftir Bíleam Beórssyni og kallaði hann til sín til að bölva ykkur. 10 En ég vildi ekki hlusta á Bíleam en hann varð að blessa ykkur og ég bjargaði ykkur úr greipum hans. 11 Þá fóruð þið yfir Jórdan og komuð til Jeríkó. Höfðingjarnir í Jeríkó börðust gegn ykkur, einnig Amorítar, Peresítar, Kanverjar, Hetítar, Gírgasítar, Hevítar og Jebúsítar, en ég seldi þá ykkur í hendur. 12 Ég sendi skelfingu á undan ykkur sem hrakti Amorítakonungana báða úr vegi ykkar, en hvorki sverð þitt né bogi. 13 Ég fékk ykkur land sem þið höfðuð ekkert haft fyrir og borgir, sem þið reistuð ekki en hafið sest að í, ég gaf ykkur víngarða og olíuviðarlundi sem þið hafið ekki plantað en lifið af. 14 Óttist því Drottin og þjónið honum af fullkominni trúmennsku. Kastið burt guðunum sem forfeður ykkar þjónuðu handan við Efrat og í Egyptalandi. 15 En líki ykkur ekki[ að þjóna Drottni, kjósið þá í dag hverjum þið viljið þjóna, hvort heldur guðunum sem forfeður ykkar þjónuðu handan Efrat eða guðum Amoríta en í landi þeirra búið þið nú. En ég og mínir ættmenn munum þjóna Drottni.“
16 Fólkið svaraði og sagði: „Það sé fjarri okkur að yfirgefa Drottin til að þjóna öðrum guðum. 17 Drottinn er Guð okkar. Hann leiddi okkur og forfeður okkar frá Egyptalandi, úr þrælahúsinu. Það var hann sem gerði þessi miklu tákn fyrir augum okkar. Hann verndaði okkur á allri þeirri vegferð, sem við höfum lagt að baki, og fyrir öllum þeim þjóðum sem leið okkar lá meðal. 18 Og Drottinn rýmdi úr vegi okkar öllum þjóðunum, þeirra á meðal Amorítum sem bjuggu í landinu á undan okkur. Við munum einnig þjóna Drottni því að hann er Guð okkar.“
19 Þá sagði Jósúa við fólkið: „Þið getið ekki þjónað Drottni. Hann er heilagur Guð, vandlátur Guð. Hann mun ekki fyrirgefa ykkur afbrot ykkar og syndir. 20 Ef þið yfirgefið Drottin og þjónið framandi guðum mun hann snúa baki við ykkur og senda böl yfir ykkur og tortíma ykkur þótt hann hafi áður reynst ykkur vel.“
21 Fólkið sagði við Jósúa: „Nei, við viljum þjóna Drottni.“
22 Þá sagði Jósúa við fólkið: „Þið eruð vitni þess gegn sjálfum ykkur að þið hafið sjálf kosið að þjóna Drottni.“
Fólkið svaraði: „Já, við erum vitni þess.“
23 „Kastið frá ykkur þeim framandi guðum sem enn eru á meðal ykkar. Snúið hjarta ykkar til Drottins, Guðs Ísraels.“
24 Fólkið svaraði Jósúa: „Við viljum þjóna Drottni, Guði okkar, og hlýða boðum hans.“
25 Á þeim degi gerði Jósúa sáttmála við fólkið og setti því lög og rétt í Síkem. 26 Jósúa skráði þessi ákvæði í lögbók Guðs. Því næst tók hann stein mikinn og reisti hann þar upp undir eikinni sem er í helgidómi Drottins. 27 Síðan ávarpaði Jósúa allt fólkið: „Þessi steinn skal vera vitni gegn okkur því að hann hefur heyrt öll orðin sem Drottinn hefur talað til okkar. Hann skal vera vitni gegn ykkur svo að þið afneitið ekki Guði ykkar.“
28 Síðan lét Jósúa fólkið fara, hvern til síns erfðalands.

Greftrun Jósúa, Jósefs og Eleasars

29 Eftir þessa atburði dó Jósúa Núnsson, þjónn Drottins, hundrað og tíu ára. 30 Hann var grafinn í erfðalandi sínu, í Timnat Sera í fjalllendi Efraíms, norðan við Gaasfjall. 31 Ísrael þjónaði Drottni á meðan Jósúa var á lífi og þeir öldungar sem lifðu Jósúa og þekktu öll þau máttarverk sem Drottinn hafði unnið fyrir Ísrael.
32 Bein Jósefs, sem Ísraelsmenn höfðu flutt með sér frá Egyptalandi, voru grafin í Síkem á landspildunni sem Jakob keypti fyrir hundrað kesíta af sonum Hemors, föður Síkems, og varð erfðahluti niðja Jósefs.
33 Eleasar Aronsson dó einnig og var grafinn í Gíbeu, borg sem Pínehas sonur hans hafði fengið í sinn hlut í Efraímsfjalllendinu.