Leita hins týnda og frelsa

1 Jesús kom til Jeríkó og gekk gegnum borgina. 2 En þar var maður er Sakkeus hét. Hann var yfirtollheimtumaður og auðugur. 3 Langaði hann að sjá hver Jesús væri en tókst það ekki fyrir mannfjöldanum því að hann var lítill vexti. 4 Hann hljóp þá á undan og klifraði upp í mórberjatré til að sjá Jesú, en leið hans lá þar hjá. 5 Og er Jesús kom þar að leit hann upp og sagði við hann: „Sakkeus, flýt þér ofan, í dag ber mér að vera í húsi þínu.“
6 Hann flýtti sér ofan og tók á móti honum glaður. 7 Þeir er sáu þetta létu allir illa við og sögðu: „Hann þiggur boð hjá bersyndugum manni.“
8 En Sakkeus sneri sér til Drottins og sagði við hann: „Drottinn, helming eigna minna gef ég fátækum og hafi ég haft nokkuð af nokkrum gef ég honum ferfalt aftur.“
9 Jesús sagði þá við hann: „Í dag hefur hjálpræði hlotnast húsi þessu enda ert þú líka niðji Abrahams. 10 Því að Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það.“

Pundin

11 Jesús sagði þeim sem höfðu hlýtt á hann aðra dæmisögu því að hann var í nánd við Jerúsalem og þeir ætluðu að Guðs ríki mundi þegar birtast. 12 Hann sagði: „Maður nokkur tiginborinn fór í fjarlægt land til þess að taka við konungdómi og koma síðan aftur. 13 Hann kallaði tíu þjóna sína, seldi þeim í hendur tíu pund og sagði við þá: Verslið með þetta þangað til ég kem. 14 En landar hans hötuðu hann og gerðu sendimann á eftir honum til að segja: Við viljum ekki að þessi maður verði konungur yfir okkur.
15 Nú kom hann aftur og hafði tekið konungdóm. Þá lét hann kalla fyrir sig þjóna þá er hann hafði selt féð í hendur til þess að vita hvað hver hefði grætt.
16 Hinn fyrsti kom og sagði: Herra, pund þitt hefur ávaxtast um tíu pund. 17 Konungur sagði við hann: Gott, þú góði þjónn, þú varst trúr í mjög litlu og því skaltu ráða fyrir tíu borgum. 18 Annar kom og sagði: Pund þitt, herra, hefur gefið af sér fimm pund. 19 Hann sagði eins við hann: Þú skalt og vera yfir fimm borgum. 20 Enn kom einn og sagði: Herra, hér er pund þitt. Ég hef haft það geymt í dúki 21 því að ég var hræddur við þig en þú ert maður strangur og tekur það út sem þú lagðir ekki inn og uppskerð það sem þú sáðir ekki. 22 Konungur segir við hann: Illi þjónn, eftir orðum þínum dæmi ég þig. Þú vissir að ég er maður strangur, sem tek það út sem ég lagði ekki inn og uppsker það sem ég sáði ekki. 23 Hvers vegna léstu þá ekki fé mitt í banka? Þá hefði ég fengið það með vöxtum er ég kom heim.
24 Og konungur sagði við þá er hjá voru: Takið af honum pundið og fáið þeim sem hefur tíu pundin. 25 En þeir sögðu við hann: Herra, hann hefur tíu pund. 26 Konungur svaraði: Ég segi ykkur: Hverjum sem hefur mun gefið verða og frá þeim sem eigi hefur mun tekið verða jafnvel það sem hann hefur. 27 En færið hingað þessa óvini mína, sem vildu ekki að ég yrði konungur yfir sér, og höggvið þá frammi fyrir mér.“

Jesú fagnað

28 Þá er Jesús hafði þetta mælt hélt hann á undan áfram upp til Jerúsalem. 29 Þegar hann nálgaðist Betfage og Betaníu við Olíufjallið, sem svo er nefnt, sendi hann tvo lærisveina sína 30 og mælti: „Farið í þorpið hér fram undan. Þegar þið komið þangað munuð þið finna fola bundinn sem enginn hefur enn komið á bak. Leysið hann og komið með hann. 31 Ef einhver spyr ykkur: Hvers vegna leysið þið hann? þá svarið svo: Drottinn[ þarf hans við.“
32 Þeir sem sendir voru fóru og fundu allt vera eins og Jesús hafði sagt þeim. 33 Og er þeir leystu folann sögðu eigendur hans við þá: „Hvers vegna leysið þið folann?“
34 Þeir svöruðu: „Drottinn þarf hans við,“ 35 og fóru síðan með hann til Jesú. Þeir lögðu klæði sín á folann og settu Jesú á bak. 36 En þar sem hann fór breiddu menn klæði sín á veginn.
37 Þegar Jesús var að koma þar að, sem farið er ofan af Olíufjallinu, hóf allur flokkur lærisveina hans að lofa Guð fagnandi hárri raustu fyrir öll þau kraftaverk, er þeir höfðu séð, 38 og segja: „Blessaður sé konungurinn sem kemur í nafni Drottins. Friður á himni og dýrð í hæstum hæðum!“
39 Nokkrir farísear í mannfjöldanum sögðu við hann: „Meistari, hasta þú á lærisveina þína.“
40 Hann svaraði: „Ég segi ykkur, ef þeir þegja munu steinarnir hrópa.“

Jesús grætur

41 Og er Jesús kom nær og sá borgina grét hann yfir henni 42 og sagði: „Ef þú hefðir aðeins vitað á þessum degi hvað til friðar heyrir! En nú er það hulið sjónum þínum. 43 Því að þeir dagar munu koma yfir þig að óvinir þínir munu gera virki um þig, setjast um þig og þröngva þér á alla vegu. 44 Þeir munu leggja þig að velli og börn þín sem í þér eru og ekki láta standa stein yfir steini í þér vegna þess að þú þekktir ekki þinn vitjunartíma.“

Hús mitt bænahús

45 Þá gekk hann inn í helgidóminn og tók að reka út þá er voru að selja 46 og mælti við þá: „Ritað er:
Hús mitt á að vera bænahús
en þér hafið gert það að ræningjabæli.“

47 Daglega var hann að kenna í helgidóminum en æðstu prestarnir og fræðimennirnir, svo og fyrirmenn þjóðarinnar, leituðust við að ráða hann af dögum 48 en fundu eigi hvað gera skyldi því að allt fólkið vildi ákaft hlýða á hann.