Sáttmálsgjörð

1 Guð sagði við Móse: „Gakk upp til Drottins, þú sjálfur, Aron, Nadab, Abíhú og sjötíu af öldungum Ísraels. Þið skuluð falla fram álengdar. 2 Móse einn skal nálgast Drottin en hinir skulu ekki nálgast hann og fólkið má ekki fara upp með honum.“
3 Móse kom og skýrði fólkinu frá öllum orðum Drottins og öllum réttarreglunum. Allt fólkið svaraði einum rómi og sagði: „Við skulum gera allt sem Drottinn hefur boðið.“ 4 Því næst skráði Móse öll boð Drottins.
Morguninn eftir var hann snemma á fótum og reisti altari við fjallsræturnar og tólf merkisteina fyrir tólf ættbálka Ísraels. 5 Síðan lét hann unga Ísraelsmenn ganga fram og þeir færðu Drottni brennifórnir og slátruðu nautum í heillafórn. 6 Móse tók helming blóðsins og hellti því í skálar en helmingi blóðsins stökkti hann á altarið. 7 Því næst tók hann sáttmálsbókina og las hana fyrir fólkið sem sagði: „Við skulum gera allt sem Drottinn hefur boðið og hlýða honum.“ 8 Þá tók Móse blóðið, stökkti því á fólkið og sagði: „Þetta er blóð sáttmálans sem Drottinn gerir hér með við ykkur og byggður er á öllum þessum fyrirmælum.“
9 Þá gengu þeir Móse og Aron, Nadab og Abíhú og sjötíu af öldungum Ísraels upp á fjallið 10 og þeir sáu Guð Ísraels. Undir fótum hans var eitthvað sem líktist safírhellum, tært eins og himinninn sjálfur. 11 Hann rétti ekki út hönd sína gegn höfðingjum Ísraels og þeir horfðu á Drottin og átu og drukku.
12 Drottinn sagði við Móse: „Kom til mín upp á fjallið og dveldu þar. Ég skal fá þér steintöflurnar, lögin og boðorðin sem ég hef skráð til að leiðbeina þeim.“ 13 Þá reis Móse á fætur ásamt Jósúa, þjóni sínum, og Móse fór upp á fjall Guðs. 14 En hann hafði sagt við öldungana: „Verið hér um kyrrt þar til við komum aftur. Aron og Húr verða hjá ykkur. Sá sem á í málaferlum getur snúið sér til þeirra.“
15 Síðan fór Móse upp á fjallið, skýið huldi það 16 og dýrð Drottins settist að á fjallinu. Skýjaþykknið huldi fjallið í sex daga en á sjöunda degi kallaði hann til Móse úr því miðju. 17 Í augum Ísraelsmanna leit dýrð Drottins út eins og eyðandi eldur á fjallstindinum. 18 En Móse gekk inn í mitt skýið og fór upp á fjallið. Móse dvaldist á fjallinu fjörutíu daga og fjörutíu nætur.