Engill með litla bók

1 Og ég sá annan sterkan engil stíga af himni ofan, hjúpaðan skýi. Regnboginn var yfir höfði honum og ásjóna hans var sem sólin og fætur hans sem eldstólpar. 2 Hann hélt á lítilli opinni bók í hendinni. Hægra fæti stóð hann á hafinu en vinstra fæti á jörðunni. 3 Hann kallaði hárri röddu eins og þegar ljón öskrar. Og er hann hafði kallað glumdi í þrumunum sjö. 4 Þegar ég ætlaði að fara að skrifa það sem þrumurnar sögðu heyrði ég rödd af himni sem sagði: „Geymdu með sjálfum þér það sem þrumurnar sjö töluðu og rita það ekki.“
5 Og engillinn, sem ég sá standa á hafinu og á jörðunni, hóf upp hægri hönd sína til himins 6 og sór við þann sem lifir um aldir alda, hann sem skóp himininn og það sem í honum er, jörðina og það sem á henni er og hafið og það sem í því er, og sagði: Lengri frestur verður ekki gefinn. 7 En þegar kemur að því að sjöundi engillinn fer að básúna hefur Guð látið rætast sitt leynda ráð sem hann hafði boðað þjónum sínum, spámönnunum.
8 Röddin, sem ég heyrði af himni, talaði þá aftur til mín og sagði: „Far og tak opnu bókina úr hendi engilsins sem stendur á hafinu og á jörðunni.“
9 Ég fór til engilsins og bað hann að fá mér litlu bókina. Og hann segir við mig: „Tak hana og et. Hún verður beisk í maga þínum en í munni þínum mun hún sæt sem hunang.“
10 Ég tók litlu bókina úr hendi engilsins, át hana og í munni mér var hún sæt sem hunang. En er ég hafði etið hana fann ég til beiskju í maga mínum. 11 Þá var sagt við mig: „Enn átt þú að flytja spámannlegan boðskap gegn mörgum lýðum og þjóðum, tungum og konungum.“