Starfa meðan dagur er

1Varpaðu brauði þínu út á vatnið.
Þegar margir dagar eru liðnir muntu finna það aftur.
2Skiptu hlutanum sundur meðal sjö eða jafnvel átta
því að þú veist ekki hvaða ógæfa bíður landsins.
3Þegar skýin eru orðin full af vatni
hvolfa þau regni yfir jörðina.
Þegar tré fellur til suðurs eða norðurs,
þá liggur það kyrrt á þeim stað.
4Sá sem sífellt gáir að vindinum sáir ekki
og sá sem sífellt horfir á skýin uppsker ekki.
5Þú veist ekki hvaða veg vindurinn fer
og hvernig beinin myndast í móðurlífi þungaðrar konu,
eins þekkir þú ekki heldur verk Guðs sem allt gerir.
6Sáðu sæði þínu að morgni
og láttu hendur þínar ekki hvílast að kvöldi
því að þú veist ekki hvort muni heppnast þetta eða hitt
eða hvort tveggja verði jafngott.
7Indælt er ljósið
og ljúft er augunum að horfa á sólina.

Æska og elli

8Lifi maðurinn mörg ár,
þá á hann að vera glaður öll þau ár
og minnast þess að dagar myrkursins verða margir.
Allt sem á eftir kemur er hégómi.
9Gleð þig, ungi maður, í æsku þinni
og láttu liggja vel á þér unglingsár þín
og breyttu eins og hjartað leiðir þig
og eins og augun girnast
en vita skaltu að fyrir allt þetta leiðir Guð þig fyrir dóm.
10Vísaðu gremju burt frá hjarta þínu
og láttu ekki böl koma nærri líkama þínum
því að æska og morgunroði lífsins eru hverful.