1 Fyrri sögu mína, Þeófílus, samdi ég um allt sem Jesús gerði og kenndi frá upphafi, 2 allt til þess dags er hann varð upp numinn. Áður hafði hann gefið postulunum, sem hann hafði valið með heilögum anda, fyrirmæli sín. 3 Hann birtist þeim eftir dauða sinn og sýndi þeim með órækum sönnunum að hann lifði. Hann lét þá sjá sig í fjörutíu daga og talaði um Guðs ríki. 4 Er Jesús neytti matar með þeim bauð hann þeim að fara ekki burt úr Jerúsalem heldur bíða eftir því sem faðirinn gaf fyrirheit um „og þér hafið heyrt mig tala um. 5 Því að Jóhannes skírði með vatni en þér skuluð skírðir verða með heilögum anda, nú innan fárra daga.“

Upp numinn

6 Meðan þeir voru saman spurðu þeir hann: „Drottinn, ætlar þú á þessum tíma að endurreisa ríkið handa Ísrael?“
7 Hann svaraði: „Ekki er það yðar að vita tíma eða tíðir sem faðirinn hefur sjálfur ákveðið. 8 En þér munuð öðlast kraft er heilagur andi kemur yfir yður og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar.“ 9 Þegar hann hafði mælt þetta varð hann upp numinn að þeim ásjáandi og ský huldi hann sjónum þeirra.
10 Er þeir störðu til himins á eftir honum þegar hann hvarf, þá stóðu hjá þeim allt í einu tveir menn í hvítum klæðum 11 og sögðu: „Galíleumenn, hví standið þér og horfið til himins? Þessi Jesús, sem varð upp numinn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins.“

Postuli valinn

12 Þá sneru þeir aftur til Jerúsalem frá Olíufjallinu, sem svo er nefnt og er í nánd við Jerúsalem, hvíldardagsleið þaðan. 13 Er þeir komu þangað fóru þeir upp í loftstofuna þar sem þeir dvöldust: Það voru þeir Pétur og Jóhannes, Jakob og Andrés, Filippus, Tómas, Bartólómeus, Matteus, Jakob Alfeusson, Símon vandlætari og Júdas Jakobsson. 14 Konurnar voru einnig með þeim og María móðir Jesú og bræður hans. Öll voru þau með einum huga stöðug í bæninni.
15 Á þessum dögum stóð Pétur upp meðal lærisveinanna. Þar var saman kominn flokkur manna, um eitt hundrað og tuttugu að tölu. Hann mælti: 16 „Systkin,[ rætast hlaut það sem heilagur andi sagði fyrir munn Davíðs í Heilagri ritningu um Júdas sem vísaði leið þeim er tóku Jesú höndum. 17 Hann var í okkar hópi og honum var falin sama þjónusta. 18 Hann keypti landspildu fyrir launin sem hann fékk fyrir ódæði sitt, steyptist á höfuðið og brast sundur í miðju svo að iðrin öll lágu úti. 19 Þetta varð kunnugt öllum Jerúsalembúum og er spilda sú kölluð Akeldamak á tungu þeirra, það er Blóðreitur. 20 Ritað er í Sálmunum:
Bústaður hans skal í eyði verða,
enginn skal í honum búa,

og:
Annar taki embætti hans.
21 Einhver þeirra manna sem með okkur voru alla tíð meðan Drottinn Jesús gekk inn og út á meðal okkar, 22 allt frá skírn Jóhannesar til þess dags er hann varð upp numinn frá okkur, verður nú að gerast vottur upprisu hans ásamt okkur.“
23 Menn völdu tvo, Jósef, kallaðan Barsabbas, öðru nafni Jústus, og Matthías, 24 báðust fyrir og sögðu: „Drottinn, þú sem þekkir hjörtu allra. Sýn þú hvorn þessara þú hefur valið 25 til að taka við þessari þjónustu og postuladómi sem Júdas vék frá til að fara til síns eigin staðar.“ 26 Þeir hlutuðu um þá og kom upp hlutur Matthíasar. Var hann tekinn í tölu postulanna með þeim ellefu.