1Hallelúja.
Ég vil lofa Drottin af öllu hjarta
í félagi og söfnuði réttvísra.
2Mikil eru verk Drottins,
verð íhugunar öllum er hafa unun af þeim.
3Tign og vegsemd eru verk hans
og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.
4Hann hefur látið minnast dásemdarverka sinna,
náðugur og miskunnsamur er Drottinn,
5hann gaf þeim fæðu er óttast hann,
minnist sáttmála síns ævinlega.
6Hann kunngjörði þjóð sinni mátt verka sinna
með því að gefa henni erfðahlut annarra þjóða.
7Hann er trúr og réttlátur í öllum verkum sínum,
öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg,
8standa óhagganleg um aldur og ævi,
framkvæmd í trúfesti og réttvísi.
9Hann sendi lausn lýð sínum,
setti sáttmála sinn að eilífu,
heilagt og óttalegt er nafn hans.
10Að óttast Drottin er upphaf speki,
þeir vaxa að viti sem hlýða boðum hans.
Lofstír hans stendur um eilífð.