1 Ljóð. Davíðssálmur.
2Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð,
ég vil syngja og leika.
Vakna þú, sál mín,
3vakna þú, harpa og gígja,
ég ætla að vekja morgunroðann.
4Ég lofa þig meðal lýðanna, Drottinn,
vegsama þig meðal þjóðanna
5því að miskunn þín nær til himna
og trúfesti þín til skýjanna.
6Hef þig hátt yfir himininn, Guð,
dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina.
7Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig
til þess að þeir sem þú elskar megi frelsast.
8Guð hefur sagt í helgidómi sínum:
„Ég vil fagna sigri, ég vil skipta Síkem,
mæla Súkkótdalinn.
9Ég á Gíleað og ég á Manasse,
Efraím er hjálmurinn á höfði mér,
Júda veldissproti minn.
10Móab er handlaug mín,
ég fleygi skóm mínum á Edóm,
ég hrósa sigri yfir Filisteu.“
11Hver leiðir mig til virkisborgarinnar,
hver fer með mig til Edóms?
12Hefur þú eigi útskúfað oss, Guð,
og ferð eigi út með hersveitum vorum?
13Veit oss lið gegn fjandmönnunum
því að hjálp manna er einskis nýt.
14Með Guðs hjálp munum vér vinna afrek
og hann mun troða óvini vora fótum.