Vatn úr kletti

1 Allur söfnuður Ísraelsmanna lagði nú af stað frá Síneyðimörkinni og hélt áfram í áföngum eftir fyrirmælum Drottins. Þeir slógu upp búðum í Refídím. Af því að ekkert drykkjarvatn var þar að finna 2 ásakaði fólkið Móse og sagði: „Gefðu okkur vatn að drekka.“ Móse sagði við það: „Hvers vegna ásakið þið mig? Hvers vegna reynið þið Drottin?“ 3 Fólkið þyrsti í vatn og möglaði gegn Móse og sagði: „Hvers vegna leiddir þú okkur frá Egyptalandi? Var það til að láta okkur, börn okkar og fénað deyja úr þorsta?“ 4 Þá hrópaði Móse á hjálp til Drottins og sagði: „Hvað get ég gert við þetta fólk? Það er rétt að því komið að grýta mig.“ 5 Drottinn sagði við Móse: „Gakktu fram fyrir fólkið og taktu með þér nokkra af öldungum Ísraels. Taktu í hönd þér stafinn sem þú slóst með á fljótið og haltu af stað. 6 Þar mun ég standa frammi fyrir þér, á klettinum við Hóreb. Þú skalt slá á klettinn og mun þá vatn spretta úr honum og fólkið fær að drekka.“ Þetta gerði Móse frammi fyrir augum öldunga Ísraels. 7 Hann nefndi staðinn Massa og Meríba [ vegna þess að Ísraelsmenn höfðu komið með ásakanir og reynt Drottin með því að spyrja: „Er Drottinn mitt á meðal okkar eða ekki?“

Orrusta við Amalekíta

8 Amalek kom og réðst á Ísrael í Refídím. 9 Þá sagði Móse við Jósúa: „Veldu menn fyrir okkur og farðu til að berjast við Amalekíta. Á morgun mun ég standa efst á hæðinni og hafa staf Guðs í hendi mér.“
10 Jósúa gerði eins og Móse hafði falið honum og hélt til orrustu við Amalekíta en Móse, Aron og Húr höfðu farið upp á háhæðina. 11 Á meðan Móse hélt hendi sinni uppi veitti Ísraelsmönnum betur en þegar hann lét hönd sína síga höfðu Amalekítar betur. 12 Þegar hendur Móse þreyttust tóku þeir stein og settu undir hann. Móse settist á hann en Aron og Húr studdu hendur hans, hvor sínum megin. Hendur hans héldust því stöðugar allt til sólarlags. 13 Þannig sigraði Jósúa Amalekíta og her þeirra með sverðs- eggjum.
14 Drottinn sagði við Móse: „Skráðu þetta í bók til minningar og láttu Jósúa leggja það á minnið því að ég ætla að afmá minninguna um Amalekíta og her þeirra af jörðinni. 15 Móse reisti þar altari og nefndi staðinn „Drottinn er hermerki mitt“. 16 Hann sagði: „Hendi var lyft gegn hásæti Drottins, milli Drottins og Amalekíta er stríð, kynslóð eftir kynslóð.“