Biðjið fyrir okkur

1 Að endingu, systkin:[ Biðjið fyrir mér að orð Drottins megi breiðast út og vera í heiðri haft eins og hjá ykkur 2 og að ég mætti frelsast frá spilltum og vondum mönnum. Því að ekki er trúin allra.
3 En trúr er Drottinn og hann mun styrkja ykkur og vernda fyrir hinum vonda. 4 En ég ber það traust til ykkar vegna Drottins að þið bæði gerið og munið gera það sem ég legg fyrir ykkur.
5 En Drottinn leiði hjörtu ykkar til kærleika Guðs og þolgæðis Krists.

Þreytist ekki gott að gera

6 En ég býð ykkur, systkin,[ í nafni Drottins vors Jesú Krists að þið sneiðið hjá hverjum þeim í söfnuðinum[ sem er iðjulaus og breytir ekki eftir þeirri reglu sem hann fékk hjá mér. 7 Því að sjálf vitið þið hvernig á að líkja eftir mér. Ekki var ég iðjulaus hjá ykkur, 8 var ekki heldur upp á aðra kominn, heldur vann ég með erfiði og striti nótt og dag til þess að vera ekki neinu ykkar til þyngsla. 9 Ekki af því að ég hafi ekki rétt til þess heldur til þess að ég gæti verið ykkur fyrirmynd að breyta eftir. 10 Því var og það að þegar ég var hjá ykkur bauð ég ykkur: Ef einhver vill ekki vinna þá á hann ekki heldur mat að fá.
11 Ég heyri að nokkur meðal ykkar slæpast og vasast í því sem þeim kemur ekki við. 12 Slíkum mönnum býð ég og áminni vegna Drottins Jesú Krists að vinna kyrrlátlega og sjá fyrir sér sjálfir.
13 En þið, systkin,[ þreytist aldrei gott að gera. 14 En ef einhver hlýðir ekki orðum mínum í bréfi þessu, þá takið eftir þeim manni, slítið samneyti við hann, þá kann hann að blygðast sín. 15 En álítið hann þó ekki óvin heldur áminnið hann sem bróður eða systur.[

Kveðjur

16 En sjálfur Drottinn friðarins gefi yður friðinn, ætíð og á allan hátt. Drottinn sé með yður öllum.
17 Kveðjan er með minni, Páls, eigin hendi og það er merki á hverju bréfi. Þannig skrifa ég.
18 Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yður öllum.