Um villuanda

1 Andinn segir berlega að á síðustu tímum muni sumir ganga af trúnni og gefa sig að villuöndum og lærdómum illra anda. 2 Þessu valda hræsnisfullir lygarar sem eru brennimerktir á samvisku sinni. 3 Þeir banna hjúskap og bjóða mönnum að halda sér frá þeirri fæðu er Guð hefur skapað til þess að við henni sé tekið með þakklæti af trúuðum mönnum er þekkja sannleikann. 4 Allt sem Guð hefur skapað er gott og engu ber frá sér að kasta sé það þegið með þakklæti. 5 Það helgast af orði Guðs og bæn.

Fyrirmynd trúaðra

6 Með því að brýna þetta fyrir söfnuðinum[ ert þú góður þjónn Krists Jesú og styrkist um leið af orði trúarinnar og þeim góða trúarlærdómi sem þú hefur fylgt. 7 En hafna þú vanheilögum hégiljum og æf sjálfan þig í guðrækni. 8 Líkamleg æfing er nytsamleg í sumu en guðræknin er til allra hluta nytsamleg og gefur fyrirheit bæði fyrir þetta líf og hið komanda.
9 Það orð er satt og í alla staði þess vert að við því sé tekið. 10 Þess vegna leggjum við á okkur erfiði og þreytum stríð[ því að við höfum fest von okkar á lifanda Guð sem er frelsari allra manna, einkum trúaðra.
11 Bjóð þú þetta og kenn það.
12 Lát engan líta smáum augum á æsku þína en ver fyrirmynd trúaðra í orði og hegðun, í kærleika, trú og hreinlífi.
13 Ver kostgæfinn við að lesa upp úr Ritningunni, uppörva og kenna þangað til ég kem.
14 Vanræktu ekki náðargjöfina sem þér var gefin að tilvísun spámanna og með handayfirlagningu öldunganna. 15 Stunda þetta, ver allur í þessu til þess að framför þín sé öllum augljós.
16 Haf gát á sjálfum þér og fræðslunni. Ver stöðugur við þetta. Þegar þú gerir það muntu bæði frelsa sjálfan þig og áheyrendur þína.