Hann er upp risinn

1 Að liðnum hvíldardegi, þegar lýsti af fyrsta degi vikunnar, komu þær María Magdalena og María hin til að líta á gröfina. 2 Þá varð landskjálfti mikill því engill Drottins sté niður af himni, kom og velti steininum og settist á hann. 3 Hann var sem elding ásýndum og klæðin hvít sem snjór. 4 Varðmennirnir skulfu af hræðslu við hann og urðu sem örendir.
5 En engillinn mælti við konurnar: „Þið skuluð eigi óttast. Ég veit að þið leitið að Jesú hinum krossfesta. 6 Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn þar sem hann lá. 7 Farið í skyndi og segið lærisveinum hans: Hann er upp risinn frá dauðum, hann fer á undan ykkur til Galíleu. Þar munuð þið sjá hann. Þetta hef ég sagt ykkur.“
8 Og þær fóru í skyndi frá gröfinni, með ótta og mikilli gleði, og hlupu að flytja lærisveinum hans boðin.
9 Allt í einu kemur Jesús á móti þeim og segir: „Heilar þið!“ En þær komu, féllu fram fyrir honum og föðmuðu fætur hans. 10 Þá segir Jesús við þær: „Óttist ekki, farið og segið bræðrum mínum og systrum[ að halda til Galíleu. Þar munu þau sjá mig.“

Varðmenn vitna

11 Meðan þær voru á leiðinni komu nokkrir varðmenn til borgarinnar og sögðu æðstu prestunum allt sem gerst hafði. 12 En þeir kvöddu saman öldungana og tóku það ráð með þeim að bera mikið fé á hermennina og mæltu við þá: 13 „Segið þetta: Lærisveinar hans komu á næturþeli meðan við sváfum og stálu honum. 14 Og ef þetta berst landshöfðingjanum til eyrna skulum við sefa hann svo að þið getið verið áhyggjulausir.“
15 Hermennirnir tóku við fénu og gerðu sem þeim var sagt. Þessi sögusögn hefur verið borin út meðal Gyðinga allt til þessa dags.

Með yður alla daga

16 En lærisveinarnir ellefu fóru til Galíleu, til fjallsins sem Jesús hafði stefnt þeim til. 17 Þar sáu þeir hann og veittu honum lotningu. En sumir voru í vafa. 18 Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. 19 Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður og sonar og heilags anda 20 og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“