Jótam Júdakonungur

1 Jótam var tuttugu og fimm ára þegar hann varð konungur og hann ríkti sextán ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Jerúsa og var Sadóksdóttir. 2 Hann gerði það sem rétt var í augum Drottins alveg eins og Ússía, faðir hans. Þó gekk hann ekki inn í musteri Drottins. En fólkið vann enn þá óhæfuverk. 3 Það var Jótam sem lét reisa efra hliðið í húsi Drottins og vinna mikið að byggingu múrsins við Ófel. 4 Hann reisti einnig borgir í fjalllendi Júda og í skóginum reisti hann virki og turna.
5 Hann átti í stríði við konung Ammóníta og sigraði. Á því ári greiddu Ammónítar honum hundrað sikla silfurs, tíu þúsund kór af hveiti og tíu þúsund kór af byggi. Sama skatt urðu Ammónítar að greiða honum annað árið og það þriðja. 6 Jótam varð voldugur af því að hann gekk óhvikull frammi fyrir augliti Drottins, Guðs síns.

Jótam deyr

7 Það sem ósagt er af sögu Jótams, um allar styrjaldir hans og verk, er skráð í bók konunga Ísraels og Júda. 8 Hann var tuttugu og fimm ára þegar hann varð konungur og ríkti sextán ár í Jerúsalem. 9 Jótam var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum og grafinn í borg Davíðs. Akas, sonur hans, varð konungur eftir hann.