Á síðustu dögum

1 En það skaltu vita að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir. 2 Menn verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, illmálgir, óhlýðnir foreldrum, vanþakklátir, guðlausir, 3 kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir og andsnúnir öllu góðu, 4 sviksamir, framhleypnir, drambsamir og elska munaðarlífið meira en Guð. 5 Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar en afneita krafti hennar. Forðastu þá.
6 Úr hópi þeirra eru mennirnir sem smeygja sér inn á heimilin og véla kvensniftir sem syndum eru hlaðnar og leiðast af margvíslegum fýsnum. 7 Þær eru alltaf að reyna að læra en geta aldrei komist til þekkingar á sannleikanum. 8 Eins og þeir Jannes og Jambres[ stóðu í gegn Móse þannig standa þessir menn í gegn sannleikanum. Þeir eru menn hugspilltir og óhæfir í trúnni. 9 En þeim verður ekki ágengt því að heimska þeirra verður hverjum manni augljós eins og líka heimska hinna varð.

Staðfesta

10 En þú hefur fylgt mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði 11 í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem ég varð fyrir í Antíokkíu, Íkóníum og Lýstru. Slíkar ofsóknir þoldi ég og Drottinn frelsaði mig úr þeim öllum.
12 Enda verða allir ofsóttir sem lifa vilja guðrækilega í Kristi Jesú. 13 En vondir menn og svikarar munu magnast í vonskunni, villa aðra og villast sjálfir.
14 En halt þú stöðuglega við það sem þú hefur numið og hefur fest trú á þar eð þú veist af hverjum þú hefur numið það. 15 Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú.
16 Sérhver ritning er innblásin af Guði[ og nytsöm til fræðslu, umvöndunar, leiðréttingar og menntunar í réttlæti 17 til þess að sá sem trúir á Guð sé albúinn og hæfur ger til sérhvers góðs verks.