Kveðja

1 Páll og Tímóteus, þjónar Krists Jesú, heilsa öllum heilögum í Filippí, sem eru í Kristi Jesú, ásamt biskupum þeirra og djáknum.
2 Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.

Þakkir og fyrirbæn

3 Ég þakka Guði mínum í hvert skipti sem ég hugsa til ykkar 4 og geri ávallt í öllum bænum mínum með gleði bæn fyrir ykkur öllum 5 vegna samfélags ykkar um fagnaðarerindið frá því þið tókuð við því og allt til þessa. 6 Ég fulltreysti einmitt því að hann, sem byrjaði í ykkur góða verkið, muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists.
7 Víst er það rétt fyrir mig að bera þennan hug til ykkar allra. Ég hef ykkur í hjarta mínu og þið eigið öll hlutdeild með mér í náðinni, bæði í fjötrum mínum og eins er ég er að verja fagnaðarerindið og sannfæra menn um gildi þess. 8 Guð er mér þess vitni hvernig ég þrái ykkur öll með ástúð Krists Jesú.
9 Og þess bið ég að elska ykkar aukist enn þá meir að þekkingu og dómgreind 10 svo að þið getið metið þá hluti rétt sem máli skipta og verðið hrein og ámælislaus til dags Krists, 11 auðug að þeim réttlætisávexti sem Jesús Kristur kemur til leiðar Guði til lofs og dýrðar.
12 En ég vil að þið, systkin,[ vitið að það sem fram við mig hefur komið hefur í raun orðið fagnaðarerindinu til eflingar. 13 Því að það er augljóst orðið í allri lífvarðarhöllinni og öllum öðrum að ég er í fjötrum vegna Krists 14 og flest hinna trúuðu[ hafa öðlast meira traust á Drottni við fjötra mína og fengið meiri djörfung til að tala orð Guðs óttalaust.
15 Sumir prédika að sönnu Krist af öfund og þrætugirni en sumir gera það líka af góðum hug. 16 Þeir gera það af kærleika vegna þess að þeir vita að ég er settur fagnaðarerindinu til varnar. 17 Hinir prédika Krist af eigingirni og ekki af hreinum hug heldur í þeim tilgangi að bæta þrengingu ofan á fjötra mína.
18 En hvað um það, Kristur er allt að einu boðaður, hvort sem það heldur er af uppgerð eða heilum hug. Og þetta gleður mig. Já, það mun áfram gleðja mig 19 því að ég veit að bænir ykkar og hjálpin, sem andi Jesú Krists veitir mér, mun frelsa mig. 20 Það er einlæg löngun mín og von að ég verði ekki til smánar í neinu, heldur að ég hafi þann kjark nú eins og ávallt að sýna með lífi mínu og dauða fram á hve mikill Kristur er. 21 Því að lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur. 22 En eigi ég áfram að lifa á jörðinni, þá verður meiri árangur af starfi mínu. Ekki veit ég hvort ég á heldur að kjósa.
23 Ég á úr tvennu vöndu að ráða: Mig langar til að fara héðan og vera með Kristi því að það væri miklu betra. 24 En ykkar vegna er nauðsynlegra að ég haldi áfram að lifa hér á jörðu. 25 Og í trausti þess veit ég að ég mun lifa og halda áfram að vera hjá ykkur öllum, ykkur til framfara og gleði í trúnni. 26 Þá kem ég aftur til ykkar og þið finnið enn betur hvílík upphefð það er að fylgja Kristi.
27 En hvað sem öðru líður, þá hegðið ykkur eins og samboðið er fagnaðarerindinu um Krist. Hvort sem ég kem og heimsæki ykkur eða ég er fjarverandi vil ég fá að heyra um ykkur að þið standið stöðug í einum anda, berjist með einni sál fyrir trúnni á fagnaðarerindið og 28 látið aldrei mótstöðumenn skelfa ykkur í neinu. Hugrekki ykkar er þeim merki frá Guði um glötun þeirra en um frelsun ykkar 29 því að Guð veitti ykkur þá náð, ekki einungis að trúa á Krist heldur og að þola þjáningar hans vegna. 30 Nú eigið þið í sömu baráttu sem þið sáuð mig heyja og heyrið enn um mig.