1Sjö konur munu þrífa í sama mann á þeim degi
og segja: „Vér skulum sjálfar fæða oss og klæða,
leyf oss aðeins að bera nafn þitt,
tak smánina frá oss.“

Hin nýja Jerúsalem

2 Á þeim degi verður kvistur Drottins fagur og vegsamlegur og ávöxtur landsins stolt og vegsemd þeirra í Ísrael sem af komast.
3 Þeir sem af lifa á Síon og þeir, sem eftir verða í Jerúsalem, verða nefndir heilagir, allir sem skráðir eru til lífsins í Jerúsalem.
4 Þegar Drottinn hefur þvegið óhreinindin af Síonardætrum og skolað burt blóðið úr Jerúsalem með dóms- og hreinsunaranda, 5 þá skapar Drottinn ský um daga og rjúkandi og bjartan eldsloga um nætur yfir öllu Síonarfjalli þeim sem þar safnast saman. Því að yfir allri dýrðinni verður hlíf. 6 Laufþak mun veita forsælu í hita dagsins og hæli og skjól í stormi og regni.