Nýir þjónar

1 Á þessum dögum, er lærisveinum fjölgaði, fóru grískumælandi menn að kvarta yfir því að hebreskir settu ekkjur þeirra hjá við daglega úthlutun. 2 Hinir tólf kölluðu þá lærisveinahópinn saman og sögðu: „Ekki hæfir að við hverfum frá boðun Guðs orðs til að þjóna fyrir borðum. 3 Finnið því, systkin,[ sjö vel kynnta menn úr ykkar hópi sem fullir eru anda og visku. Munum við setja þá yfir þetta starf. 4 En við munum helga okkur bæninni og þjónustu orðsins.“ 5 Öll samkoman gerði góðan róm að máli þeirra og kaus hún Stefán, sem var gagntekinn af trú og heilögum anda, Filippus, Prókorus, Níkanor, Tímon, Parmenas og Nikolás frá Antíokkíu sem tekið hafði gyðingatrú. 6 Söfnuðurinn lét leiða þá fram fyrir postulana sem báðust fyrir og lögðu hendur yfir þá.
7 Orð Guðs breiddist út og tala lærisveinanna í Jerúsalem fór stórum vaxandi. Einnig snerist mikill fjöldi presta til hlýðni við trúna.

Stefán tekinn höndum

8 Stefán var fullur af náð og krafti og gerði undur og tákn mikil meðal fólksins. 9 Þá komu til nokkrir menn úr svonefndri Leysingjasamkundu. Þeir voru frá Kýrene og Alexandríu en aðrir frá Kilikíu og Asíu og tóku að þrátta við Stefán. 10 En þeir gátu ekki staðið gegn þeirri visku og anda sem hann talaði af. 11 Þá fengu þeir menn nokkra til að segja: „Við höfum heyrt hann tala lastmæli gegn Móse og Guði.“ 12 Þeir æstu upp fólkið, öldungana og fræðimennina og þeir veittust að honum, gripu hann og færðu hann fyrir ráðið. 13 Þá leiddu þeir fram ljúgvotta er sögðu: „Þessi maður talar sífellt gegn þessum heilaga stað og lögmálinu. 14 Við höfum heyrt hann segja að þessi Jesús frá Nasaret muni brjóta niður musterið og breyta þeim siðum sem Móse hefur sett okkur.“ 15 Allir sem í ráðinu sátu störðu á hann og sáu að ásjóna hans var sem engils ásjóna.