Skækjan mikla

1 Einn af englunum sjö, sem halda á skálunum sjö, kom til mín og sagði: „Kom hingað og ég mun sýna þér hvernig skækjunni miklu verður refsað, borginni sem liggur við vötnin mörgu. 2 Konungar jarðarinnar hafa drýgt saurlifnað með henni og þeir sem á jörðunni búa hafa orðið drukknir af lostaveigum hennar.“
3 Og andinn kom yfir mig og engillinn leiddi mig út í eyðimörk. Þar sá ég konu sitja á skarlatsrauðu dýri, alsettu guðlöstunar nöfnum og hafði það sjö höfuð og tíu horn. 4 Konan var klædd í purpura og skarlat og skrýdd gulli, gimsteinum og perlum. Hún hafði í hendi sér gullbikar, fullan af viðurstyggð og óhreinindum af saurlifnaði hennar. 5 Og á enni hennar var ritað nafn, leyndardómur: Babýlon hin mikla, móðir alls saurlifnaðar og svívirðu á jörðunni. 6 Og ég sá að konan var drukkin af blóði hinna heilögu og af blóði votta Jesú. Og ég undraðist stórlega er ég leit hana.
7 Og engillinn sagði við mig: „Hví ertu forviða? Ég mun segja þér leyndardóm konunnar og dýrsins með höfuðin sjö og hornin tíu sem ber hana: 8 Dýrið, sem þú sást, var, en er ekki, og það mun stíga upp frá undirdjúpinu og fara til glötunar. Og þeir sem á jörðu búa og eiga ekki frá grundvöllun veraldar nöfn sín skráð í lífsins bók munu undrast er þeir sjá dýrið sem var og er ekki og kemur aftur.
9 Hér reynir á skilning og speki. Höfuðin sjö eru sjö fjöll sem konan situr á. Það eru líka sjö konungar. 10 Fimm eru fallnir, einn er nú uppi, annar er ókominn og er hann kemur á hann að vera stutt. 11 Og dýrið, sem var en er ekki, er einmitt hinn áttundi og er af þeim sjö og fer til glötunar.
12 Og hornin tíu, sem þú sást, eru tíu konungar sem enn hafa eigi tekið við ríki heldur fá vald sem konungar eina stund ásamt dýrinu. 13 Þessir hafa allir eitt ráð og ljá dýrinu mátt sinn og vald. 14 Þessir munu heyja stríð við lambið. Og lambið og þeir sem með því eru, hinir kölluðu og útvöldu og trúu, munu sigra þá – því að lambið er Drottinn drottna og konungur konunga.“
15 Og engillinn segir við mig: „Vötnin, sem þú sást, þar sem skækjan situr, eru lýðir og fólk, þjóðir og tungur. 16 Og hornin tíu, sem þú sást, og dýrið munu hata skækjuna og svipta hana öllu og skilja hana eftir nakta. Þau munu eta hold hennar og brenna hana í eldi 17 því að Guð hefur lagt þeim í brjóst að gera vilja sinn og vera ásátt um að fela dýrinu að ráða ríkjum, allt til þess er orð Guðs koma fram. 18 Og konan, sem þú sást, er borgin mikla sem ríkir yfir konungum jarðarinnar.“