Þjóðirnar dæmdar

1 [ Á þeim tíma og á þeim dögum
er ég rétti hag Júda og Jerúsalem
2safna ég saman öllum þjóðum
og stefni þeim niður í Jósafatsdal.
Og þar sæki ég þær til saka
vegna lýðs míns og arfleifðar Ísraels
því að þær hafa tvístrað henni meðal þjóðanna
og hlutað sundur land mitt.
3Þeir hafa varpað hlutkesti um þjóð mína,
látið pilt fyrir skækju
og ungmey fyrir vínið sem þeir drukku.
4 Hvað viljið þér mér, Týrus, Sídon og öll Filisteahéruð? Hyggið þér á málagjöld einhvers sem ég hef gert yður? Hyggist þér endurgjalda mér? Skjótt og sviplega læt ég þá verk yðar koma yður í koll. 5 Þér hafið rænt silfri mínu og gulli og fært ágætustu gersemar mínar í hof yðar. 6 Júdamenn og Jerúsalembúa hafið þér selt Grikkjum þannig að þeir fluttust langt burt frá átthögum sínum. 7 En ég kalla þá burt þaðan sem þér selduð þá, og verk yðar munu hitta sjálfa yður fyrir. 8 Syni yðar og dætur sel ég Júdamönnum. Þeir munu aftur selja þau Sabamönnum, fjarlægri þjóð, því að svo hefur Drottinn mælt.
9Boðið þetta meðal þjóðanna:
Búið yður til stríðs.
Kallið út kempurnar.
Allir stríðsmenn komi fram og búist til hernaðar.
10Smíðið sverð úr plógjárnum yðar
og spjót úr sniðlum yðar.
Hver vesalingur hrópi: „Ég er garpur.“
11Skundið af stað, komið hvaðanæva, allar þjóðir.
Safnist þar saman.
Drottinn, sendu niður kappa þína þangað.
12Þjóðirnar skulu halda í flýti
upp til Jósafatsdals.
Þar sest ég í dómarasæti
yfir grannþjóðunum öllum.
13Bregðið sigðinni,
vínberin eru fullþroskuð.
Komið og troðið.
Svo full er vínþróin
að lagarkerin flóa yfir.
Svo mikil er illska þeirra.
14Mannþröng, mannsægur
í Dal dómsins.
Nálægur er dagur Drottins
í Dal dómsins.

Dagur Drottins

15Sól og tungl myrkvast
og stjörnurnar synja um birtu sína.
16En Drottinn þrumar frá Síon
og hefur upp raust sína frá Jerúsalem
svo að himinn og jörð nötra.
En lýð sínum veitir Drottinn skjól
og Ísraelsmönnum er hann athvarf.
17Og yður verður ljóst að ég, Drottinn, Guð yðar,
bý á Síon, hinu heilaga fjalli mínu.
Jerúsalem verður heilög,
aðkomumenn munu aldrei framar ryðjast þar í gegn.
18Á þeim degi
drýpur vínlögur af fjöllunum,
hæðirnar fljóta í mjólk
og vatn mun streyma um alla farvegi í Júda.
Og lind mun streyma frá húsi Drottins
og fylla farveg Akasíudalsins.

Endurlausn Júda

19Egyptaland verður að auðn
og Edóm að mannlausum öræfum
vegna ofbeldisins gegn Júdamönnum.
Í landi þeirra úthelltu þeir saklausu blóði.
20En Júda verður byggð að eilífu
og Jerúsalem um aldir alda.
21Saklaust mun ég telja það blóð
sem ég mat áður til blóðsakar.
Og Drottinn mun dveljast um kyrrt á Síon.