Abía konungur í Júda

1 Á átjánda stjórnarári Jeróbóams konungs Nebatssonar varð Abía konungur í Júda. 2 Hann ríkti þrjú ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Maaka Absalonsdóttir.
3 Hann drýgði allar sömu syndir og faðir hans hafði áður drýgt og hann fylgdi Drottni, Guði sínum, ekki heils hugar eins og Davíð, forfaðir hans, hafði gert. 4 Samt gaf Drottinn, Guð hans, honum lampa í Jerúsalem vegna Davíðs með því að gera son hans að eftirmanni hans og varðveita Jerúsalem 5 því að Davíð hafði gert það sem rétt var í augum Drottins og í engu vikið frá því sem Drottinn bauð honum, á meðan hann lifði, nema í máli Úría Hetíta.
6 Rehabeam átti í stríði við Jeróbóam alla ævi.[
7 Það sem ósagt er af sögu Abía og verkum hans er skráð í annála Júdakonunga. Ófriður var með Abía og Jeróbóam. 8 Abía var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum og grafinn í borg Davíðs. Asa sonur hans varð konungur eftir hann.

Asa konungur í Júda

9 Á tuttugasta stjórnarári Jeróbóams, konungs í Ísrael, varð Asa konungur í Júda. 10 Hann ríkti fjörutíu og eitt ár í Jerúsalem. Móðir[ hans hét Maaka Absalonsdóttir.
11 Asa gerði það sem rétt var í augum Drottins eins og Davíð, forfaðir hans. 12 Hann rak hofskækjurnar úr landinu og fjarlægði guðamyndirnar sem forfeður hans höfðu látið gera. 13 Hann svipti jafnvel Maöku, móður sína, konungsmóðurtign sinni af því að hún hafði látið gera viðurstyggilega mynd af Aséru. Asa hjó mynd hennar í sundur og brenndi hana í Kedrondal. 14 Að vísu hurfu fórnarhæðirnar ekki en samt fylgdi Asa Drottni af heilum hug allt sitt líf. 15 Hann flutti einnig helgigjafir föður síns og sínar eigin helgigjafir í musteri Drottins, bæði silfur og gull og ýmis áhöld.
16 Ófriður var með Asa og Basa Ísraelskonungi á meðan þeir lifðu. 17 Basa Ísraelskonungur hélt í herför gegn Júda og víggirti Rama til að loka leiðinni fyrir öllum til og frá Asa Júdakonungi. 18 Þá tók Asa allt silfur og gull sem enn var í fjárhirslum húss Drottins og í fjárhirslum konungshallarinnar og fékk það í hendur þjónum sínum. Hann sendi þá til Benhadads Aramskonungs, sonar Tabrimmons Hesíonssonar sem ríkti í Damaskus. Lét Asa þá flytja þessi skilaboð: 19 „Sáttmáli er milli mín og þín, milli föður míns og föður þíns. Ég sendi þér hér með gjöf, gull og silfur. Rjúfðu sáttmála þinn við Basa Ísraelskonung svo að hann hörfi frá mér.“ 20 Benhadad varð við tilmælum Asa konungs. Hann sendi hershöfðingja sína í herför gegn borgum Ísraels og sigraði Íjón, Dan og Abel-Bet-Maaka en auk þess allt Kinnerot og allt land Naftalíættbálks. 21 Þegar Basa frétti þetta hætti hann að víggirða Rama og fór aftur til Tirsa. 22 Þá kvaddi Asa konungur saman alla Júdamenn með tölu og lét þá flytja burt steinana og timbrið sem Basa hafði notað til að víggirða Rama. Asa konungur víggirti síðan Geba í Benjamín og Mispa með byggingarefninu.
23 Það sem ósagt er af sögu Asa, verkum hans, dáðum og borgunum, sem hann reisti, er skráð í annála Júdakonunga. En svo fór að hann varð fótaveikur í ellinni 24 og var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum og grafinn hjá þeim í borg Davíðs, forföður síns. Jósafat, sonur hans, varð konungur eftir hann.

Nadab konungur í Ísrael

25 Nadab, sonur Jeróbóams, varð konungur yfir Ísrael á öðru stjórnarári Asa Júdakonungs. Hann ríkti í Ísrael tvö ár.
26 Hann gerði það sem illt var í augum Drottins. Hann breytti á sama hátt og faðir hans og drýgði sömu syndir og hann hafði komið Ísrael til að drýgja.
27 Basa, sonur Ahía af ættbálki Íssakars, gerði samsæri gegn honum. Basa felldi Nadab í Gibbeton, sem er eign Filistea, þegar Nadab og allur Ísrael sat um Gibbeton. 28 Basa drap hann á þriðja stjórnarári Asa Júdakonungs og varð konungur eftir hann. 29 Þegar Basa var orðinn konungur drap hann alla ætt Jeróbóams. Hann lét engan af ætt Jeróbóams halda lífi heldur tortímdi henni allri eins og Drottinn hafði boðað fyrir munn þjóns síns, Ahía frá Síló. 30 Þetta varð vegna þeirra synda sem Jeróbóam hafði drýgt og hann hafði komið Ísrael til að drýgja og með því vakið reiði Drottins, Guðs Ísraels.
31 Það sem ósagt er af sögu Nadabs og verkum hans er skráð í annála Ísraelskonunga. 32 Asa og Basa Ísraelskonungur áttu í ófriði meðan þeir lifðu.

Basa konungur í Ísrael

33 Á þriðja stjórnarári Asa Júdakonungs varð Basa, sonur Ahía, konungur yfir öllum Ísrael. Hann ríkti tuttugu og fjögur ár í Tirsa.
34 Hann gerði það sem illt var í augum Drottins. Hann breytti eins og Jeróbóam og drýgði sömu syndir og þær sem hann hafði komið Ísrael til að drýgja.