1Á átjánda ríkisári Jeróbóams Nebatssonar varð Abía konungur yfir Júda.2Þrjú ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Maaka, dóttir Absalons.3Hann drýgði allar sömu syndirnar, er faðir hans hafði fyrir honum haft, og hjarta hans var ekki óskipt gagnvart Drottni, Guði hans, eins og hjarta Davíðs forföður hans.4Því að það var eingöngu Davíðs vegna, að Drottinn, Guð hans, gaf honum lampa í Jerúsalem, að hann hóf sonu hans eftir hann og lét Jerúsalem standa,5af því að Davíð hafði gjört það sem rétt var í augum Drottins og aldrei á ævi sinni vikið frá neinu því, er hann hafði fyrir hann lagt, nema hvernig hann fór með Úría Hetíta.6Rehabeam átti í ófriði við Jeróbóam alla ævi.7Það, sem meira er að segja um Abía, og allt, sem hann gjörði, það er ritað í Árbókum Júdakonunga. Og þeir áttu í ófriði saman, Abía og Jeróbóam.8Og Abía lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn í Davíðsborg. Og Asa sonur hans tók ríki eftir hann.9Á tuttugasta ríkisári Jeróbóams, konungs í Ísrael, varð Asa konungur yfir Júda.10Fjörutíu og eitt ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Maaka, dóttir Absalons.11Asa gjörði það sem rétt var í augum Drottins, eins og Davíð forfaðir hans.12Hann rak þá menn úr landi, er helgað höfðu sig saurlifnaði, og útrýmdi öllum skurðgoðum, sem forfeður hans höfðu gjöra látið.13Hann svipti jafnvel Maöku móður sína drottningartigninni, fyrir það að hún hafði gjöra látið hræðilegt asérulíkneski. Og Asa hjó sundur þetta hræðilega líkneski hennar og brenndi það í Kídrondal.14En hæðirnar voru ekki afnumdar. Þó var hjarta Asa óskipt gagnvart Drottni alla ævi hans.15Hann lét og flytja í hús Drottins helgigjafir föður síns, svo og helgigjafir sínar silfur, gull og áhöld.16En þeir áttu ófrið saman alla ævi, Asa og Basa konungur í Ísrael.17Og Basa, konungur í Ísrael, fór herför á móti Júda og víggirti Rama, svo að enginn maður gæti komist út eða inn hjá Asa Júdakonungi.18Þá tók Asa allt silfrið og gullið, sem enn var eftir í féhirslum húss Drottins, og fjársjóðu konungshallarinnar og seldi í hendur mönnum sínum. Síðan sendi Asa konungur þá til Benhadads Tabrimmonssonar, Hesíonssonar, konungs á Sýrlandi, er bjó í Damaskus, með þessa orðsending:19Sáttmáli er milli mín og þín, milli föður míns og föður þíns. Sjá, ég sendi þér gjöf í silfri og gulli. Skalt þú nú rjúfa bandalag þitt við Basa Ísraelskonung, svo að hann hafi sig á burt frá mér.20Benhadad tók vel máli Asa konungs og sendi hershöfðingja sína móti borgum Ísraels og vann Íjón og Dan og Abel-Bet-Maaka og allt Kinnerót, svo og allt Naftalí-land.21Þegar Basa spurði það, hætti hann að víggirða Rama og sneri heim til Tirsa.22En Asa konungur bauð út öllum Júdamönnum enginn var undanskilinn. Og þeir fluttu burt steinana og viðinn, sem Basa hafði víggirt Rama með, og víggirti Asa konungur með þeim Geba í Benjamín og Mispa.23Það sem meira er að segja um Asa og hreystiverk hans og allt það, er hann gjörði, og borgirnar, sem hann víggirti, það er allt ritað í Árbókum Júdakonunga. Þó má geta þess, að á efri árum gjörðist hann fótaveikur.24Og Asa lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var grafinn hjá feðrum sínum í borg Davíðs, forföður síns. Og Jósafat sonur hans tók ríki eftir hann.25Nadab, sonur Jeróbóams, varð konungur yfir Ísrael á öðru ríkisári Asa, konungs í Júda, og ríkti hann tvö ár yfir Ísrael.26Hann gjörði það sem illt var í augum Drottins og fetaði í fótspor föður síns og drýgði þær syndir, er hann hafði drýgt og komið Ísrael til að drýgja.27En Basa, sonur Ahía af ætt Íssakars, hóf samsæri gegn honum og vann sigur á honum við Gibbeton, sem Filistar áttu. En Nadab og allur Ísrael sátu þá um Gibbeton.28Þannig drap Basa hann á þriðja ríkisári Asa, konungs í Júda, og tók ríki eftir hann.29En er hann var konungur orðinn, drap hann alla ætt Jeróbóams. Hann lét engan eftir verða af konungsættinni, þann er anda dró, uns hann hafði gjöreytt henni, og rættist þannig orð Drottins, sem hann hafði talað fyrir munn þjóns síns, Ahía frá Síló,30vegna synda Jeróbóams, þeirra er hann hafði drýgt og komið Ísrael til að drýgja, er hann egndi Drottin, Guð Ísraels, til reiði.31Það sem meira er að segja um Nadab og allt, sem hann gjörði, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga.32En þeir áttu ófrið saman alla ævi, Asa og Basa, konungur í Ísrael.33Á þriðja ríkisári Asa, konungs í Júda, varð Basa, sonur Ahía, konungur yfir öllum Ísrael, og ríkti hann tuttugu og fjögur ár í Tirsa.34Hann gjörði það sem illt var í augum Drottins og fetaði í fótspor Jeróbóams og drýgði þær syndir, er hann hafði drýgt og komið Ísrael til að drýgja.

15.3 Heilshugar 1Kon 8.61+
15.12 Hofskækjur 1Kon 14.24+ – guðamyndir fjarlægðar 2Kro 15.8
15.13 Brennt í Kedrondal 2Kon 23.4-6,12
15.27 Gibbeton 1Kon 16.15
15.29 Eyddi konungsættinni 1Kon 14.10+