Um leiðtoga kirkjunnar

1 Það orð er satt. Sækist einhver eftir biskupsstarfi þá girnist hann göfugt hlutverk. 2 Biskup á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur,[ bindindissamur, hóglátur, háttprúður, gestrisinn, góður fræðari, 3 ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, heldur gæfur, ekki deilugjarn, ekki fégjarn. 4 Hann á að vera maður sem veitir góða forstöðu heimili sínu og venur börn sín á hlýðni og alla prúðmennsku.
5 Hvernig má sá sem ekki hefur vit á að veita heimili sínu forstöðu veita söfnuði Guðs umsjón?
6 Hann á ekki að vera nýr í trúnni til þess að hann ofmetnist ekki og verði fyrir sama dómi og djöfullinn. 7 Hann á líka að hafa góðan orðstír hjá þeim sem standa fyrir utan til þess að hann verði ekki fyrir álasi og lendi í tálsnöru djöfulsins.
8 Svo eiga og djáknar að vera heiðvirðir, hreinskilnir, ekki drykkfelldir eða ágjarnir. 9 Þeir skulu varðveita leyndardóm trúarinnar með hreinni samvisku. 10 Einnig þá skal fyrst reyna, síðan takist þeir þjónustuna á hendur ef þeir eru óaðfinnanlegir.
11 Ef konur eru djáknar skulu þær vera heiðvirðar, ekki rógberar, heldur bindindissamar, trúar í öllu.
12 Djáknar séu einkvæntir og hafi góða stjórn á börnum sínum og heimilum. 13 Því að þeir sem hafa staðið sig vel sem djáknar ávinna sér góðan orðstír og mikla djörfung í trúnni á Krist Jesú.
14 Þótt ég vonist til að koma bráðum til þín rita ég þetta 15 til þess að þú skulir vita, ef mér seinkar, hvernig á að haga sér í Guðs húsi. Guðs hús er söfnuður lifanda Guðs, stólpi og grundvöllur sannleikans. 16 Og víst er leyndardómur trúarinnar mikill:
Hann birtist í manni,
sannaðist í anda,
opinber englum,
var boðaður þjóðum,
trúað í heimi,
hafinn upp í dýrð.