1 Davíðssálmur.
Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
2Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta. [
3Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
4Þótt ég fari um dimman dal
óttast ég ekkert illt
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
5Þú býrð mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyrð höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
6Gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína
og í húsi Drottins
bý ég langa ævi.