1 Í sjöunda mánuðinum bar það til að Ísmael Netanjason, Elísamasonar, sem var skyldur konungsættinni, kom til Gedalja Ahíkamssonar, Safanssonar, í Mispa og tíu menn með honum. Þegar þeir snæddu með honum í Mispa 2 reis Ísmael Netanjason á fætur, ásamt þeim tíu mönnum sem komið höfðu með honum, og hjó Gedalja Ahíkamsson, Safanssonar, banahögg. Þannig drap hann þann mann sem Babýloníukonungur hafði skipað landstjóra. 3 Hann drap einnig alla þá Júdamenn sem voru hjá Gedalja í Mispa. Ísmael drap enn fremur hermennina frá Kaldeu sem þar voru.
4 Daginn eftir að Gedalja var myrtur, áður en nokkuð hafði frést um það, 5 komu áttatíu menn frá Síkem, Síló og Samaríu. Höfðu þeir rakað af sér skeggið, rifið föt sín og rist á sig skinnsprettur.[ Þeir höfðu með sér korn til fórnar og reykelsi sem þeir ætluðu að fara með til húss Drottins. 6 Ísmael Netanjason gekk út úr Mispa til móts við þá. Hann grét á göngunni og þegar hann mætti þeim sagði hann: „Komið til Gedalja Ahíkamssonar.“ 7 Þegar þeir voru komnir inn í miðja borgina hjó Ísmael Netanjason og þeir sem með honum voru mennina og fleygðu þeim í gryfju. 8 En meðal þeirra voru tíu menn sem sögðu við Ísmael: „Dreptu oss ekki. Vér eigum matarbirgðir sem eru faldar úti á akri, hveiti, bygg, olíu og hunang.“ Þá hætti hann við að drepa þá mitt á meðal skyldmenna þeirra. 9 En gryfjan sem Ísmael kastaði í öllum líkum þeirra manna er hann drap var stóra gryfjan sem Asa konungur hafði látið gera til varnar gegn Basa Ísraelskonungi. Hana fyllti Ísmael Netanjason vegnum mönnum.
10 Því næst fór Ísmael Netanjason burt með allt fólkið sem eftir var í Mispa. Hann fór bæði með dætur konungsins og alla aðra sem eftir voru í Mispa og Nebúsaradan, foringi lífvarðarins, hafði sett Gedalja Ahíkamsson landstjóra yfir. Ísmael Netanjason tók fólkið með sér og hélt svo af stað til að komast yfir til Ammóníta.
11 Jóhanan Kareason og allir herforingjarnir, sem með honum voru, fréttu nú um öll illvirkin sem Ísmael Netanjason hafði framið. 12 Þeir héldu því af stað ásamt öllum mönnum sínum til að ráðast á Ísmael Netanjason. Þeir fundu hann við stóra vatnið í Gíbeon. 13 Þegar allt fólkið, sem var með Ísmael, kom auga á Jóhanan Kareason og alla herforingjana, sem voru með honum, gladdist það. 14 Allt fólkið, sem Ísmael hafði flutt með sér frá Mispa, yfirgaf hann nú og fór yfir til Jóhanans Kareasonar 15 en Ísmael Netanjason komst undan Jóhanan ásamt átta mönnum og flýði yfir til Ammóníta.
16 Jóhanan Kareason og allir herforingjarnir, sem voru með honum, fóru því næst frá Gíbeon með alla þá sem eftir voru af fólkinu og Ísmael Netanjason hafði tekið með sér frá Mispa eftir að hann hafði drepið Gedalja Ahíkamsson. Þeir tóku með sér hermenn, konur, börn og hirðmenn, 17 héldu af stað og námu svo staðar við gistihús Kimhams sem er við Betlehem. Þeir hugðust flýja til Egyptalands 18 undan Kaldeum því að þeir voru hræddir við þá þar sem Ísmael Netanjason hafði drepið Gedalja Ahíkamsson sem konungurinn í Babýlon hafði skipað landstjóra.