Altarið

1 Þú skalt gera altari úr akasíuviði, fimm álnir á lengd og fimm álnir á breidd. Altarið á að vera ferhyrnt. Hæð þess skal vera þrjár álnir. 2 Þú skalt gera horn á það upp af á fjórum hornum þess. Hornin skulu vera föst við það. Þú skalt leggja altarið eir. 3 Þú skalt gera ker undir fórnaröskuna, skóflur, skálar fyrir dreypifórnir, gaffla og eldpönnur. Öll áhöld altarisins skaltu gera úr eir. 4 Þú skalt gera grind úr eir um altarið eins og riðið net, setja fjóra hringi úr eir á netið, á fjögur horn altarisins. Grindina skaltu festa 5 og koma fyrir neðan við umgjörð altarisins þannig að netið nái upp á mitt altarið. 6 Þú skalt einnig gera stengur fyrir altarið, stengur úr akasíuviði og þú skalt leggja þær eir. 7 Stöngum altarisins skal smeygt í hringina þannig að þær séu á báðum hliðum altarisins þegar það er borið. 8 Þú skalt gera altarið úr borðum, holt að innan. Þeir skulu gera það eins og þér var sýnt á fjallinu.

Forgarðurinn

9 Því næst skaltu gera forgarð tjaldbúðarinnar. Á suðurhliðinni skal forgarðurinn búinn veggtjöldum úr tvinnuðu, fínu líni, hundrað álnir á lengd á þá hliðina. 10 Þar eiga að vera tuttugu súlur ásamt tuttugu sökklum úr eir en naglarnir í súlunum og þverslárnar skulu vera úr silfri. 11 Að norðanverðu eiga einnig að vera veggtjöld eftir endilangri hliðinni, hundrað álnir á lengd, einnig tuttugu súlur ásamt tuttugu sökklum úr eir, en naglarnir í súlunum og þverslárnar skulu vera úr silfri. 12 Á þverhlið forgarðsins að vestanverðu skulu vera fimmtán álna löng tjöld og tíu súlur ásamt sökklum. 13 Þverhlið forgarðsins að austanverðu á að vera fimmtíu álnir 14 og öðrum megin skulu vera fimmtán álna löng tjöld og þrjár súlur ásamt þremur sökklum 15 og hinum megin einnig fimmtán álna löng tjöld og þrjár súlur ásamt þremur sökklum. 16 Fyrir hliði forgarðsins skal vera tuttugu álna forhengi úr bláum purpura, rauðum purpura og skarlati, ásamt tvinnuðu, fínu líni myndofnu, og fjórar súlur ásamt fjórum sökklum. 17 Allar súlur umhverfis forgarðinn skulu tengdar með þverslám úr silfri og naglarnir í þeim skulu vera úr silfri en sökklar þeirra skulu vera úr eir. 18 Forgarðurinn skal vera hundrað álnir á lengd, fimmtíu álnir á breidd og fimm álnir á hæð. Tjöldin skulu vera úr tvinnuðu, fínu líni og sökklarnir úr eir. 19 Öll áhöld í bústaðnum, sem ætluð eru til allrar guðsþjónustu, og allir tjaldhælar hans og allir tjaldhælar forgarðsins eiga að vera úr eir.

Olían

20 Þú skalt gefa Ísraelsmönnum fyrirmæli um að þeir færi þér tæra olíu úr steyttum ólífum fyrir ljósastikuna svo að setja megi upp lampa sem brenni sífellt. 21 Í samfundatjaldinu framan við fortjaldið, sem er fyrir framan sáttmálstáknið, eiga Aron og synir hans að sjá um að lamparnir logi frá kvöldi til morguns frammi fyrir augliti Drottins. Þetta er ævarandi skuldbinding fyrir Ísraelsmenn frá kyni til kyns.