Herforingjar Davíðs

1 Þetta er skrá yfir fjölda þeirra Ísraelsmanna, ættarhöfðingja, foringja þúsund og hundrað manna herflokka og alla þá embættismenn sem þjónuðu konunginum í öllu sem snerti flokkana. Þeir komu og fóru mánuð eftir mánuð, alla mánuði ársins. Í hverjum flokki voru 24.000 menn.
2 Jasóbeam Sabdíelsson var fyrir fyrsta flokknum í fyrsta mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn. 3 Hann var einn af niðjum Peresar og yfirmaður allra foringja hersins í fyrsta mánuðinum.
4 Dódaí, af ætt Ahóhí, var fyrir flokknum í öðrum mánuði. Miklót var honum næstur en í flokki hans voru 24.000 menn.
5 Benaja, sonur Jójada æðsta prests, var þriðji hershöfðinginn í þriðja mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn. 6 Benaja þessi var hetja, einn hinna 30, og foringi hinna 30 og flokks síns. Sonur hans var Ammísabad.
7 Asael, bróðir Jóabs, var fjórði hershöfðinginn í fjórða mánuðinum og á eftir honum Sebadja, sonur hans. Í flokki hans voru 24.000 menn.
8 Samhút liðsforingi, afkomandi Seraks, var sá fimmti í fimmta mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn.
9 Íra Íkkesson frá Tekóa var sá sjötti í sjötta mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn.
10 Heles frá Pelet, afkomandi Efraíms, var sá sjöundi í sjöunda mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn.
11 Sibbekaí frá Húsa, afkomandi Seraks, var sá áttundi í áttunda mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn.
12 Abíeser frá Anatót, afkomandi Benjamíns, var sá níundi í níunda mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn.
13 Maharaí frá Netófa, afkomandi Seraks, var sá tíundi í tíunda mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn.
14 Benaja frá Píraton, afkomandi Efraíms, var sá ellefti í ellefta mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn.
15 Heldaí frá Netófa, afkomandi Otníels, var sá tólfti í tólfta mánuðinum. Í flokki hans voru 24.000 menn.

Höfðingjar ættbálkanna

16 Höfðingjar ættbálka Ísraels:
Elíeser Síkríson var höfðingi yfir niðjum Rúbens, Sefatja Maakason var yfir niðjum Símeons, 17 Hasabja Kemúelsson var yfir Leví og Sadók var yfir Aron. 18 Elíhú, einn af bræðrum Davíðs, var yfir Júda, Omrí Míkaelsson var yfir Íssakar, 19 Jismaja Óbadíason var yfir Sebúlon, Jerímót Asríelsson var yfir Naftalí, 20 Hósea Asasjason var yfir Efraím, Jóel Pedajason var yfir öðrum helmingi ættbálks Manasse 21 en Jiddó Sakaríason var yfir hinum helmingi ættbálks Manasse í Gíleað og 22 Asarel Jeróhamsson yfir Dan.
Þetta voru höfðingjar ættbálka Ísraels.
23 Davíð hafði ekki látið skrá fjölda þeirra sem voru tvítugir og yngri því að Drottinn hafði heitið því að gera Ísrael jafnfjölmennan og stjörnur himins. 24 Jóab Serújuson hafði byrjað talninguna en ekki lokið henni því að refsidómur hafði komið yfir Ísrael vegna hennar. Þess vegna var endanleg tala ekki skráð í annála Davíðs konungs.

Umsjónarmenn eigna konungs

25 Asmavett Adíelsson var settur yfir birgðageymslur konungs og Jónatan Ússíason yfir birgðageymslurnar úti á landsbyggðinni, í borgum, þorpum og virkjum. 26 Esrí Kelúbsson var settur yfir verkamennina sem unnu á ökrunum. 27 Símeí frá Rama var settur yfir víngarðana og Sabdí frá Sefan yfir vínbirgðirnar í víngörðunum. 28 Baal Hanan frá Geder var settur yfir olíuviðarlundi og mórberjafíkjutré á Sefelasvæðinu. Jóas var settur yfir olíubirgðirnar. 29 Sítraí frá Saron hafði umsjón með nautgripum sem gengu í haga á Saronssléttunni og Safat Adlaíson með nautgripum í dölunum. 30 Óbíl, afkomandi Ísmaels, hafði umsjón með úlföldum og Jehdeja frá Meronót með ösnunum. 31 Jasís, afkomandi Hagar, hafði umsjón með sauðfé og geitum.
Allir þessir menn voru umsjónarmenn með eignum Davíðs konungs.

Nánustu samstarfsmenn Davíðs

32 Jónatan, föðurbróðir Davíðs, var ráðgjafi hans. Hann var skynsamur maður og lærður. Jehíel Hakmóníson var með sonum konungs. 33 Akítófel var ráðgjafi konungs og Húsaí Arkíti var vinur konungs. 34 Jójada Benajason tók við af Akítófel. Abjatar var prestur og Jóab hershöfðingi.