Tóla og Jaír

1 Eftir Abímelek reis upp Tóla Púason, Dódósonar, maður af Íssakar, til að frelsa Ísrael. Hann bjó í Samír á Efraímsfjöllum 2 og var dómari í Ísrael í tuttugu og þrjú ár. Síðan andaðist hann og var grafinn í Samír.
3 Eftir hann reis upp Jaír frá Gíleað og var dómari í Ísrael í tuttugu og tvö ár.
4 Hann átti þrjátíu syni sem riðu á þrjátíu ösnufolum og áttu þrjátíu þorp. Eru þau kölluð Jaírsþorp allt fram á þennan dag. Þau eru í Gíleaðlandi. 5 Síðan andaðist Jaír og var grafinn í Kamón.

Jefta

6 Ísraelsmenn gerðu enn að nýju það sem illt var í augum Drottins og dýrkuðu Baala og Astörtur, guði Arams, guði Sídonar, guði Móabs, guði Ammóníta og guði Filistea og yfirgáfu Drottin og dýrkuðu hann ekki. 7 Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael og hann seldi þá í hendur Filisteum og í hendur Ammónítum. 8 Þeir þjáðu og þjökuðu Ísraelsmenn það ár. Í átján ár þjökuðu þeir alla Ísraelsmenn sem bjuggu í Gíleað hinum megin Jórdanar í landi Amoríta. 9 Enn fremur fóru Ammónítar yfir Jórdan til þess að herja á Júda, Benjamín og ætt Efraíms svo að Ísrael lenti í miklum þrengingum.
10 Þá hrópuðu Ísraelsmenn til Drottins og sögðu: „Við höfum syndgað gegn þér því að við höfum yfirgefið Guð okkar og dýrkað Baala.“ 11 En Drottinn sagði við Ísraelsmenn: „Hafa ekki Egyptar, Amorítar, Ammónítar, Filistear, 12 Sídoningar, Amalekítar og Midíanítar kúgað ykkur? Þá hrópuðuð þið til mín og ég frelsaði ykkur úr höndum þeirra. 13 En þið hafið yfirgefið mig og dýrkað aðra guði. Þess vegna vil ég ekki hjálpa ykkur framar. 14 Farið og hrópið til guða þeirra sem þið hafið valið ykkur. Hjálpi þeir ykkur þegar þið eruð í nauðum.“ 15 Þá sögðu Ísraelsmenn við Drottin: „Við höfum syndgað. Gerðu við okkur það sem þér líkar en frelsaðu okkur í dag.“ 16 Síðan köstuðu þeir frá sér útlendu guðunum og dýrkuðu Drottin. Gat hann þá ekki unað hremmingum Ísraels.
17 Þá var Ammónítum stefnt saman og settu þeir herbúðir sínar í Gíleað. En Ísraelsmenn söfnuðust saman og settu herbúðir sínar í Mispa. 18 Herliðið, höfðingjarnir í Gíleað, sögðu hver við annan: „Hver er sá maður sem fyrstur vill hefja ófrið við Ammóníta? Hann skal vera höfðingi yfir öllum íbúum Gíleaðs.“